156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[17:23]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Fidu Abu Libdeh fyrir spurningarnar og vangavelturnar. Þessar breytingar úr þessu 30% kerfi, sem byggir á því að þú takir þriggja ára nám á þremur árum án tafa eða fimm ára nám á fimm árum án tafa, yfir í að þú fáir 20% af upphæðinni fyrir hverja önn ef þú lýkur henni og svo 10% ef þú nærð þremur árum á þremur árum og fimm árum á fimm árum, þær eru einmitt liður í því að koma til móts við fólk af mjög ólíkum uppruna eða fólk sem lendir í ólíkum og óvæntum aðstæðum. Þannig að það er nú einmitt hugsað til þess að skapa þennan sveigjanleika. 10% eru samt höfð inni vegna þess að það er ávinningur af því fyrir samfélagið og einstaklinginn sjálfan ef hann hefur möguleika til þess að taka námið á sem stystum tíma. Þannig að þetta er einmitt hugsað til þess. Hvort nógu langt er gengið, það skal ég ekki segja um. Það getum við bara tekið umræðu um þegar við förum í heildarendurskoðunina. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir að það er miklu ólíkari hópur sem fer í háskóla í dag heldur en fór í latínuskólann í gamla daga. Það er ekki líku saman að jafna. Þetta eru bara hlutir sem þarf að hafa í huga. Það eru ýmiss konar leiðir til þess að fá frest til að byrja að greiða af námslánum og öðru. Hvort það ætti að vera í því tilfelli þegar fólk er að stofna fyrirtæki eða ekki, ég veit það ekki, ég er ekki viss um það. En það er alveg sjálfsagt að ræða alla þessa hluti.