156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[17:25]
Horfa

Fida Abu Libdeh (F) (andsvar):

Ég þakka svörin, hæstv. ráðherra. Já, mér finnst ekki vera gengið langt til að skapa sérstaklega nýsköpunarfyrirtækjum — sem eru sprotafyrirtæki og sprotafyrirtæki eru skilgreind sem fyrirtæki sem eru sprottin úr rannsókn og þróun í háskólanámi. Þannig að þetta er framhaldsnám sem er ekki metið sem framhaldsnám í þeim skilningi að þú getir fengið námslán en þetta tekur samt mörg ár að þróast. Sprotafyrirtæki eru sprottin úr háskólanámi. Það væri því kannski áhugavert að skoða það. Mér finnst það ekki langt gengið. Við erum að skoða þessi lög, við erum að skoða þessar breytingar og það mætti endurskoða líka undanþágureglurnar um lengd náms. Það er gert ráð fyrir barneignum, það er gert ráð fyrir fötlun en það er ekki gert ráð fyrir íslensku sem öðru máli.