156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[17:26]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Já, ég þakka bara aftur fyrir ágætisábendingar. Þetta er meðal þeirra hluta sem er alveg sjálfsagt að skoða af því að við sem stundum nám erum ólíkari nú heldur en fyrir áratugum síðan. Þannig að þetta er alveg sannarlega þess virði að skoða og ég hvet hv. þingmann til að taka þátt í þeirri vinnu og leggja til umræðunnar, bæði þegar þetta ber á góma hér í þingsal og einnig þegar við förum í heildarendurskoðunina.