Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Það hefur verið fróðlegt að hlusta á umræður um þetta mál sem er auðvitað svolítið tæknilegt. Alls kyns sjónarmið hafa komið upp og ég ætla bara að fá að leggja aðeins til málanna í þeim efnum. Í grófum dráttum varðar þetta mál mjög afmarkaðan þátt er lýtur að skólastarfi eða námi íslenskra nemenda hér á Íslandi. Það er reyndar eitt sem ég hef kannski ekki áttað mig á, en væntanlega á þetta líka við íslenska nemendur erlendis, lán til þeirra. En látum það liggja á milli hluta. Ég ætla svo sem ekki að fara að sökkva mér djúpt ofan í útfærslur á þessu.
Það er alveg ljóst að markmiðið með þessu frumvarpi — eða það er kannski ekki markmiðið í sjálfu sér að fjölga lánþegum en það er a.m.k. gert ráð fyrir því að verði þetta frumvarp að lögum þá muni námslánaþegum fjölga af því að verið er að bjóða upp á sveigjanleika varðandi námslánin, sveigjanleika sem lýtur að því að styrkjakerfið sem komið var á fyrir nokkrum árum, sem varðar niðurfellingu á námslánum, verði þá sveigjanlegra. Það hefur svo sem kannski ekki verið rætt í tengslum við þetta mál hvernig þetta styrkjakerfi hefur komið út. Auðvitað kalla nemendur eftir auknum styrkjum eða aukinni niðurfellingu á námslánum. Skárra væri það nú. En ekki er endilega rætt í þessu frumvarpi hvort það sé hagkvæmt að hafa það yfirhöfuð, mat á þeim áhrifum. Það er a.m.k. að mínu mati ekki endilega einboðið að það sé heppilegt fyrirkomulag er kemur að námslánum.
Námslán eru hins vegar að mínu mati alveg nauðsynleg. Það er nauðsynlegt að nemendum standi til boða námslán með einum eða öðrum hætti. Ég er ekki sannfærð um það fyrirkomulag að ríkið reki sérstaklega námslánastofnun, sem hét einmitt LÍN hér í gamla daga, Lánasjóður íslenskra námsmanna, en fellur núna undir Menntasjóð námsmanna. Það hefði að mínu mati kannski verið skynsamlegra að reyna að ýta undir forsendur fjármálastofnana til þess að veita nemendum lán á betri kjörum, með alls kyns skilyrðum, heldur en að ríkið sé sjálft að vasast í þessari fjármálastarfsemi, af því að námslán og skuldabréfaútgáfa tengd þeim eru auðvitað meira bara hefðbundnir fjármálagerningar sem ég tel að ættu kannski betur heima hjá fjármálastofnunum. Ég er ekki frá því að nemendum myndi jafnvel gefast færi á að fá betri kjör og að það væri til meiri hagsbóta fyrir nemendur ef þessi lán væru eins og önnur hjá viðskiptabönkum þessara sömu nemenda. En gott og vel.
Það sem ég vildi samt nefna líka er að í þessari umræðu finnst mér nauðsynlegt að menn hafi í huga að mikill munur er á aðstöðu nemenda þegar kemur að námslánum í ljósi þess hvers konar nám þeir stunda. Það má segja að það séu í rauninni bara nemendur í bóknámi sem njóta réttar til námslána af þessu tagi samkvæmt lögum. Það er mjög takmarkað sem námslán nýtast í verknámi eða starfsnámi. Það hefur hins vegar skapast mjög mikill aðstöðumunur milli nemenda í mjög mikilvægum starfsnámsgreinum og námi sem varðar þjóðfélagið mikið. Ég tók sem dæmi í andsvari fyrr í dag námið til skipstjórnarréttinda sem ríkið býður nemendum nánast að kostnaðarlausu, þ.e. nemendur borga held ég 30.000 kr. fyrir heilt ár í slíku námi sem er bæði bóklegt og auðvitað mjög mikið verklegt, en á sama tíma er sístækkandi stétt í ferðaþjónustunni, í fluggeiranum og þar eru margir nemendur áhugasamir enda má segja að Ísland sé flugþjóð eins og fjallað er um hana þessa dagana í fjölmiðlum. Það er mikill áhugi á slíku námi en það nám er dýrt. Það kostar auðvitað það sama og nám til skipstjórnarréttinda en þar bera nemendur allan kostnað af náminu.
Þó er rétt að geta þess að nemendur geta sótt um námslán fyrir bóklega hlutann en verklegi hlutinn er þó sá sem vegur þyngst. Ætli það sé ekki bara svipað hlutfall og mætti segja um skipstjórnarréttindin. Nemendur í þessum greinum eiga því ekki kost á að fá námslán, jafnvel þó að kannski mætti segja að það væri nánast áhættulaus eða áhættulítil lánveiting til slíkra nemenda sem að námi loknu ganga að því sem við myndum kannski kalla hálaunastörf. Að sama skapi er rétt að geta þess að neikvæð afleiðing af því að ríkið reki námslánakerfi er að þá eiga þessir sömu nemendur hins vegar kannski erfitt um vik að fá lán hjá fjármálastofnunum vegna þess að fjármálastofnanir eru hreinlega bara ekki á þeim markaði því að ríkið hefur í rauninni þurrkað upp þann markað.
Mig langar að nefna líka að í kaflanum um mat á áhrifum er talað um að það sé kostnaður upp á kannski rúman hálfan milljarð verðtryggt á ári sem þetta frumvarp hefur í för með sér og er þá miðað við núverandi vaxtakjör sem Menntasjóðnum bjóðast í dag hjá svokölluðum endurlánum ríkissjóðs. Það er síðan smá umfjöllun um einhvers konar áhrif þess ef lánþegar endurgreiða lánin sín fyrr en ætla mætti. Þó er alfarið óljóst af athugasemdum með þessu frumvarpi hvernig áhætta og kostnaður af þessu kerfi öllu saman verður sýnilegur. Það hefði kannski þurft að reifa það aðeins hvort áhættan og kostnaðurinn liggi hjá Menntasjóðnum eða hjá ríkisreikningi.
Ég nefni þetta vegna þess að við höfum fyrir framan okkur núna stórt verkefni sem lýtur að Íbúðalánasjóðskerfinu gamla og ekki er útséð um hvernig það verður leyst en það hefur verið verkefni stjórnvalda síðustu ár að leysa úr þeim, ef segja má, hrapallegu mistökum sem voru gerð hér á árum áður þegar Íbúðalánasjóður fór að bjóða lán á afar lágum kjörum en fjármagnaði sig á miklu óhagstæðari kjörum og sjóðurinn lenti svo auðvitað í mikilli klemmu þegar lánþegar greiddu upp lánin sín fyrr en samið var um. Ég a.m.k. vek athygli hv. þingmanna sem sitja í allsherjar- og menntamálanefnd á þessu atriði, að veita þessu atriði athygli og búa svo um hnútana að það komi a.m.k. skýrt fram af hálfu hv. allsherjar- og menntamálanefndar hvar þessi áhætta og kostnaður liggur raunverulega. Þetta finnst mér skipta miklu máli, að það liggi fyrir að einhvern tímann að nokkrum árum liðnum sé ekki um það að ræða að menn lendi í einhverjum ógöngum vegna uppgreiddra námslána löngu fyrir umsaminn gjalddaga.
Svo vil ég að lokum nefna það líka að mér finnst að þegar menn ræða almennt um námslánakerfið þá þurfi menn að taka svolítið tillit til þess að skólagjöld hér á Íslandi eru engin, a.m.k. í hinum opinberu skólum og segja má lág í þeim einkareknu. Hvort það er bara einn einkarekinn háskóli eftir núna á háskólastiginu, einn eða tveir, en skólagjöldin í þeim skólum eru ekki óyfirstíganlegur fjárhagslegur baggi. Þetta finnst mér svolítið þurfa að hafa í huga þegar verið er að ræða um aðgengi að námi, af því að stundum er talað eins og það sé ægilegur baggi og óyfirstíganleg hindrun fyrir íslenska nemendur eða íslenskt ungt fólk að sækja sér nám, hvort sem það er háskólanám eða verknám. Það finnst mér nú alls ekki hafa verið þannig. Mér hefur frekar þótt skorta á nauðsynlega hvata í skólakerfinu sem lýtur að því að það sé einhvers konar verðmiði á nám, þ.e. að nemendur þurfi að velta svolítið fyrir sér kostnaði og tekjum og þá er ég ekki að meina atvinnutekjum heldur jákvæðum og neikvæðum afleiðingum þess að fara í eitthvert tiltekið nám og hvað það kostar og einmitt með hliðsjón af því að íslenskir háskólanemendur dvelja allt of lengi í skóla. Það er einmitt fyrirsjáanleg afleiðing af þessu frumvarpi að nemendur munu kannski leyfa sér að draga námið aðeins á langinn. Eins og fyrirkomulagið er þó núna er ákveðinn hvati til að menn ljúki náminu á réttum tíma en þarna er aðeins verið að gefa meiri sveigjanleika. Það er kannski það sem mér hefur heyrst skólafólk vera að nefna, a.m.k. þarf Háskóli Íslands og háskólarnir kannski síst á því að halda að hafa nemendur mikið lengur en þeir eru í háskólanámi.
Ég vildi bara nefna, virðulegur forseti, að allt spilast þetta saman; skólagjöld og námslán. Svo er það líka ríkt í íslenskum nemendum að vinna með skóla. Hvort sem það þykir góð latína frá bæjardyrum skólanna sjálfra eða kennara þá virðist það nú vera þannig. Það hefur líka verið komið til móts við slíkar kröfur nemenda, þ.e. frítekjumark hefur verið hækkað þannig að nemendur hafa kosið að vinna bara töluvert með háskólanámi í stað þess að taka lán. Ég segi það svo sem að ég fagna því í sjálfu sér ef nemendur bera gæfu til þess að sjá að menn eiga að draga það í lengstu lög að taka námslán og skuldsetja sig áður en menn fara út á vinnumarkaðinn þótt öllu megi ofgera og vinna með námi sé kannski komin úr hófi fram hjá mörgum nemendum og verði kannski til þess að þeir dragist of langt aftur úr í náminu eða láti það tefja nám sitt úr hófi. Allt eru þetta atriði sem ég held að menn ættu að hafa í huga.
Ég bara hlakka til að sjá hvernig þetta mál þróast í hv. allsherjar- og menntamálanefnd og taka þátt í 2. umræðu þegar þar að kemur.