Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Menntasjóður námsmanna þarf auðvitað að vera í góðu horfi, ég held að við séum öll sammála um það. Í þessum tilteknu breytingum þá sér maður að það er verið að hnika til alls konar hvötum og það hefur komið fram í máli hæstv. menntamálaráðherra að þetta er gert á grundvelli ákveðinnar athugunar á þeirri vinnu sem hefur farið fram, það er verið að meta reynsluna og sjá hvernig hefur tekist til. Mér fannst það nú hljóma þannig hjá hæstv. ráðherra að á sama tíma og þetta frumvarp væri byggt á þeirri vinnu þá væri ekkert útilokað að í framhaldinu yrði síðan byggt á árangrinum af þessu fyrirkomulagi sem er verið að leggja upp með núna. Í þessu sambandi, eins og við höfum sagt hérna, þá varðar svona mál, að ríkið sé að stíga inn í með svona myndarlegan stuðningi til námsmanna, auðvitað hagsmuni okkar allra og atvinnulífsins og kerfisins og annað. Það er inni í háskólunum sem við erum að knýja áfram í raun og veru þekkingarmyndun og menntun fyrir þá sem síðan fara út í kerfin okkar. Við höfum auðvitað rætt það hér í dag hve gagnlegar allar þessar námsbrautir eru og ég held að það sé mjög erfitt að fullyrða um gagnsemi eða ógagnsemi hverrar og einnar námsbrautar. En ég geri hins vegar ákveðna athugasemd við þá nálgun hæstv. ráðherra að gefa sér fyrir fram að allt saman hljóti þetta nú að gegna einhverju hlutverki eða vera gagnlegt að einhverju marki. Ég held að við ættum frekar að nálgast þetta úr hinni áttinni og prófa að byrja á byrjuninni og segja: Að mörgu leyti erum við komin með stórt háskólakerfi, það eru 20.000 ungmenni sem við erum með þarna inni — er þetta allt saman fullkomlega nauðsynlegt? Ég veit alveg að hæstv. ráðherra er tilbúinn til að ræða það. Af þessum 20.000 manns sem eru í háskólanámi þá eru t.d. 31,5%, samkvæmt mínum tölum, í félagsvísindum, viðskiptum og lögfræði. Þetta eru 31,5%, rúmlega 7.000 sem eru þá í félagsvísindum, viðskiptum og lögfræði. Þetta er stór flokkur og þarna rúmast ýmislegt. Viðskiptafræðingarnir, gott og vel, ætli þeir séu ekki nauðsynlegir til ýmissa hluta, sannarlega. Lögfræðingarnir, ég meina, eru þeir ekki alltaf aðeins of margir, erum við ekki alltaf almennt á þeirri skoðun að lögfræðingarnir séu of margir? Það er bara gömul saga og ný. Svo eru þeir að karpa við hver annan. Það mætti örugglega fækka þeim á endanum, ég held að það sé einfaldast, en svo eru þeir að gæta alls konar hagsmuna. Svo eru það félagsvísindin.
Við vorum tala um hérna áðan þetta vandmeðfarna hugtak sem við köllum skaðmenntun. Ég held að það fari örugglega sitthvað fram af skaðmenntun innan félagsvísinda almennt og í víðum skilningi. Þá gætum við náttúrlega nefnt margt og tínt margt til. Það dylst náttúrlega engum að innan háskólanna og opinberu háskólanna á Íslandi er á sumum sviðum og hjá sumum kennurum auðvitað óhjákvæmilega töluverð hugmyndafræðileg slagsíða og þeir sem hafa áhuga á hugmyndafræði og hvernig hún virkar geta náttúrlega fylgst með því og fundið það á sér, það dylst engum hvaða almennu afstöðu við finnum fyrir frá háskólasamfélaginu, kannski einmitt félagsvísindunum og hugvísindum. Svo mætti fara í hugmyndasöguna og rekja það allt aftur til rótanna í marxismanum. Marxisminn er auðvitað byggður á kennisetningum kristninnar á endanum og þá er maður kannski kominn svolítið á hugmyndafræðilegar og almennar nótur frekar en að vera að ræða efni sjálfs frumvarpsins. En við erum náttúrlega að tala um þessa gagnsemi og hvaða hagsmuni ríkisvaldið hefur af því að mennta svona stóran hóp fólks í stað þess að vera með hann t.d. á atvinnumarkaði.
Ég tek sögulega séð ekki undir þessi hörðu sjónarmið fólks sem segir að allt saman sé þetta gjörsamlega tilgangslaust, menn ættu bara að knýja hjól atvinnulífsins eða þá að eina hlutverk menntunar sé að knýja hjól atvinnulífsins. Ég er auðvitað alls ekki að segja það, ég fagna ekki slíkri einhliða nálgun. Það er samt þannig að maður finnur það alveg, ég var á málstofu í háskólanum í gær, hver svona almenna tilhneigingin er innan raða háskólanema. Það er að mínu mati oft ekkert sérlega gagnleg hugmyndafræði eða uppbyggileg hugmyndafræði. Hæstv. háskólaráðherra vék að því t.d. hvernig við gætum notað skólakerfið og fór aðeins yfir það í máli sínu áðan hvernig við getum notað skólakerfið frá upphafi í ákveðnum uppeldislegum tilgangi, fara yfir siðfræði, fara yfir heimspeki. En þá er ekki að mínu mati, eins og mér fannst vera tónninn vera hjá hæstv. háskólaráðherra, alveg sama hvaða heimspeki eða hvaða siðfræði við erum að kenna. Hver eru skilaboðin sem við sendum nemendum með þeim einmitt heimspekilegu áherslum eða samfélagslegu áherslum sem við leggjum á hlutina? Hvernig erum við að stuðla að þeirra þroska sem einstaklinga? Erum við að kenna þeim heimspeki eða heimspekilega lífssýn sem gengur út á að efla styrk þeirra, ástina á fegurðinni og hreystinni og að vera sjálfstæður og öflugur og hress og kátur? Eða erum við, sem ég óttast að sé stundum tilhneigingin, í ákveðinni fórnarlambsvæðingu sem mér hefur svo sem orðið tíðrætt um, ákveðinni fórnarlambsvæðingu og ákveðnum félagslegum marxisma með ofuráherslu á ýmiss konar forréttindi og annað eins? Erum við að brjóta niður stemninguna með því að gera of mikið úr slíkum vandamálum í stað þess að höfða til sjálfsábyrgðarinnar sem ég ræddi nú líka hérna í ræðustól Alþingis fyrr í vikunni? Ég tel að það skipti máli hvers konar áherslur við leggjum í skólakerfinu á slíkan siðferðislegan þankagang. Ég tel að það skipti máli hvað það er.
Þegar við tökum þetta síðan enn lengra og hugsum um hvaða skilaboð við sendum með háskólakerfinu og til þess hvernig fólk síðan háttar lífi sínu, eins og t.d. með þessi námslán sem eru sannarlega gott tæki og hafa reynst bara prýðilegt tæki til þess að jafna tækifæri fólks til náms, þá tel ég samt áríðandi að ráðuneytið og þeir sem starfa í þessum málum leggi á það alla áherslu, með einhverjum hætti, að hvetja fólk ekki til frekari lántöku en það þarf að ráðast í. Þar tel ég t.d. að við eigum auðvitað að senda þau skilaboð almennt út í samfélagið að t.d. meðfram háskólanámi eftir því sem hægt er — ráðherra gerði sérstaklega mikið úr þessu notalega skeiði, þriggja ára og jafnvel fimm ára skeiði þar sem mönnum gæfist næði til að læra, eins og mig minnir að það hafi verið orðað, en mér finnst að við eigum að setja spurningarmerki við þá nálgun. Viljum við ekki frekar einmitt að fólk, um leið og hægt er, fari að blanda saman námi og vinnu í þeim greinum sem það er?
Ég talaði um það hérna áðan að ég er hugvísindamenntaður og ég minnist þess sjálfur að fljótlega eftir að ég byrjaði í háskóla þá byrjaði ég að vinna samhliða námi sem blaðamaður á Morgunblaðinu og ég lærði ekkert síður að vinna og læra að hugsa þar en ég gerði síðan í háskólanum. Ég held að í því sambandi megi áhersla stjórnvalda síst vera of mikil á því að búa til of mikla hvata til lántöku og síður til þess að fólk reyni — já, eins og var náttúrlega hér í gamla daga, fólk reyndi mjög mikið að vinna fyrir sér á sumrin og notaði svo sparlega féð í staðinn fyrir að reiða sig bara á þessi lán sem það þarf síðan að borga að lokum. Svo er það náttúrlega kostnaður fyrir ríkissjóð. Jafnvel þótt við styðjum þessa fjárfestingu, sannarlega, þá er þetta samt á endanum kostnaður fyrir ríkissjóð.
Ég geld sömuleiðis varhuga við ákveðinni hugsun sem ég held að geti verið tilhneiging í átt að innan kerfisins, eins og hæstv. háskólaráðherra kom inn á — í ljósi námsstyrksins svonefnda, þ.e. þessi 30% endurgreiðsla höfuðstóls sem kemur til þín þegar þú klárar námið. Upphaflega voru aðeins 50% að nýta þennan námsstyrk en markmiðið var eða hugsunin var að 90% væru að fá þennan námsstyrk. Það voru aðeins 50% í upphafi, fór upp í 70% og núna er markmiðið, skilst mér, eins og mér skilst á hæstv. menntamálaráðherra, að koma að einhverju leyti hlutfalli fólks sem fær þessa beinhörðu endurgreiðslu upp í 90% vegna þess að fjárheimildin með einhverjum hætti gerir ráð fyrir því. Þó að markmiðið og hugsunin geti verið góð þá er það kannski ekki alveg til fyrirmyndar að ef ekki allt fé nýtist sem lagt er til einhvers verkefnis þá þurfi að gera sérstakar ráðstafanir til að tryggja að örugglega allt fé nýtist, í staðinn fyrir að hugsa: Hvað getum við þá gert annað, jafnvel innan sama ramma, gáfulegt við þessa peninga? Þetta finnst mér geta verið merki um að við séum með ofuráherslu á lántöku einmitt, ef þarna birtist okkur að mögulega sé bara ekki frekari þörf á þessu eða eitthvað slíkt.
En vissulega getur verið að þetta sé bagalegt fyrir marga og ég skil vel og virði það við hæstv. ráðherra að reyna að ráða bug á því, það er mikilvægt ef fólk finnur sig á milli skips og bryggju í þessu, að lagfæra þá bresti. Engu að síður held ég að við þurfum áfram að halda því á lofti að við viljum auðvitað að fólk vinni. Við viljum ekki heldur, eins og núna er verið að gera, þessar vaxtabreytingar því ríkissjóður er óhjákvæmilega á endanum, eins og mér skilst, að taka á sig ákveðinn aukinn kostnað við að gera þessar vaxtabreytingar. Enn og aftur: Þetta er fjárfesting sem borgar sig en hún þarf heldur ekkert að kosta meira en hún þarf að kosta.
Það eru ýmis sjónarmið í þessu og ég vænti þess að við munum eiga gagnlega umræðu hér í þingsal en sömuleiðis í nefnd þegar þar að kemur. Að öðru leyti fagna ég því að við fáum hér góða umræðu um menntamál. Á svona tímapunktum í sögunni, á svona tímamótum, þá finnst mér áhugi vakna hjá mjög mörgum á menntamálum, ég finn fyrir miklum áhuga á menntamálum þjóðarinnar víða úr samfélaginu. Við höfum haldið uppi mikilli gagnrýni á störf ríkisstjórnarinnar á öðrum sviðum en í menntamálum og þetta er auðvitað samhangandi heild. Ég tala um þessa hugmyndafræði. Ég vil ekki nota orðið aumingjavæðing en við viljum gera ákveðnar kröfur í menntamálum og ég held að ungt fólk og börn vilji að það séu gerðar kröfur til þeirra. Við höfum bent á að því sé að hluta til ábótavant í grunnskólakerfinu og það gildir ekkert síður um háskólanám. Auðvitað erum við að fjárfesta í fólki. Auðvitað erum við með námslán en sömuleiðis líka er þessi viðkvæmni, ákveðin viðkvæmni við að árangurstengja þetta stóru myndinni. Ég veit ekki hvað í raun þetta mun gefa en sömuleiðis er það líka umræðuefni sem er vert að taka lengra. Erum við feimin við að gera ákveðnar kröfur? En að því sögðu þá þakka ég góðar umræður og við höldum vonandi áfram að ræða þetta mál sem varðar Menntasjóðinn.