Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður hefur alveg farið nákvæmlega eftir því sem ég sagði. Ég talaði náttúrlega um að mér fyndist bara gott ef fólk á einhverjum tímapunkti ævi sinnar gæti ef það vildi helgað sig námi. Ég var ekki að hvetja það til að taka nám og ég held að það hafi allir gott af því að vinna, jafnvel eitthvað með námi, en þeir sem vilja helga sig námi og eru í erfiðu námi ættu eiginlega að geta fengið að gera það.
Ég ætla hins vegar að ræða aðeins við hann um það sem mér fannst áhugaverðast í ræðunni. Ég sagði vissulega í ræðunni að ég teldi í sjálfu sér að allt nám, öll þekkingarleit væri einstaklingum til góðs og svo, eins og kom hérna fram áðan, er hægt að nota hana í alls konar tilgangi. Ég skil alveg það sjónarmið hv. þingmanns að það geti átt við að setja einhverjar skorður um það hversu margir fara í eitthvert nám og það er alveg gert. Við t.d. ákváðum það núna að hleypa 95 inn í lögreglunámið í staðinn fyrir 85. Þetta er gert eiginlega í öllum fögum, nánast öllum fögum. Hvort við getum gert það öðruvísi? Alveg örugglega. En það sem mér fannst skemmtilegast var þegar hv. þingmaður fór að tala um eitthvert tiltekið nám sem skaðmenntun og þá óska ég bara eftir því að hann útskýri það orð fyrir mér og hvað þingmaðurinn á við. Ætlar hann sér að leggjast í það að ákvarða hvaða nám er skaðmenntun og hvaða nám ekki? Með hvaða hætti ætlar hann að gera það? Ætlast hann til þess að þingið setji á fót nefnd til að fara yfir það sem á sér stað í háskólastofnunum og inni í skólastofum og leggja mat á það að eitthvert tiltekið nám sé til góðs og annað sé skaðmenntun?