156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[17:56]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Já, ég þakka hæstv. háskólaráðherra fyrir afar góða spurningu en henni er ekki auðsvarað. Hvað felst í skaðmenntuninni? Þetta eru auðvitað nýyrði sem mig rámar í að hafa heyrt fyrst í meðförum hv. þm. Bergþórs Ólasonar þegar hann var gestur í hlaðvarpi mínu þegar ég var ekki orðinn pólitískur aðili formlega, en vakti áhuga minn. Hvað felst í skaðmenntun mætti lýsa með margvíslegum dæmum. Ég var nú í hugvísindanámi við Háskóla Íslands á sínum tíma og ég myndi alveg fullyrða að hluti námsins þar hafi verið í ætt við eitthvað sem kalla mætti á einhverjum tímapunkti og í einhverjum skilningi skaðmenntun. Skaðmenntun í þeim skilningi að bornar eru á borð hugmyndir einmitt sem kannski eru runnar undan rótum þessa félagslega marxisma sem stundum teygir anga sína um allt hugsanakerfi okkar og já, kannski innrætir fólki einhvers konar heimssýn sem mér finnst ekki draga fram styrk einstaklingsins heldur gera mikið úr möguleika einstaklingsins á að teljast fórnarlamb samkvæmt alls konar háþróuðum útreikningskerfum á því fórnarlambssviði.

Eins og þú heyrir þá er svarið við þessu kannski tiltölulega fræðilegt, enda erum við að tala um fræði, við erum að tala um menntun og skaðmenntun held ég að megi draga saman í að vera menntun sem endar á að skila þér út hálfpartinn ruglaðri í ríminu en þú varst áður en þú gekkst inn í viðkomandi menntastofnun. Engu að síður vekur þetta upp margar spurningar og er mjög áhugavert viðfangsefni og ég þakka hæstv. háskólaráðherra, sem ég á erfitt með að muna að sé háskólaráðherra vegna þess að hann lætur sig auðvitað varða menntun í víðum skilningi og menntamálaráðherrarnir eru síbreytilegir. (Forseti hringir.) En ég þakka hæstv. háskólaráðherra fyrir þessa góðu spurningu. Við þyrftum kannski að efna til frekari umræðu (Forseti hringir.) um þetta hugtak, kannski hann geri það núna.