156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[18:00]
Horfa

Snorri Másson (M) (andsvar):

Ég þakka hæstv. háskólaráðherra enn á ný fyrir áhugaverða umræðu í þingsal. Ég er ekki að leggja það til að fara í formlega rannsókn á skaðmenntun innan íslenskra háskóla. Engu að síður tel ég ekki að það yrði neinn skortur á eftirspurn á því frá ákveðnum hluta almennings að eitthvað slíkt væri gert vegna þess að það er þannig að hluti almennings, hluti nemenda og vafalaust kennara — maður hefur svo sem heyrt háskólakennara hjá t.d. Háskóla Íslands lýsa því jafnvel opinberlega, til að mynda nefna menn þar mikla vinstri slagsíðu hjá háskólakennurum. Ég held að hæstv. háskólaráðherra geri ekkert sérlega vel endilega að hafna því undanbragðalaust að sú slagsíða sé fyrir hendi. (Menningarrh.: Ég hef aldrei verið í íslenskum háskóla.) Hann segist ekki hafa verið í íslenskum háskóla en ber engu að síður ábyrgð á íslensku háskólunum núna, hæstv. ráðherra. Ég tel að við þurfum ekki að fara í neina orðaleiki með það að það er auðvitað hugmyndafræðislagsíða á alls konar svæðum, á alls konar sviðum og bara víða hjá hinu opinbera að mínu mati. Það gildir í háskólunum. Það gildir líka vafalaust í menntaskólunum, það gildir vafalaust í grunnskólunum, jafnvel í leikskólunum, það gildir hjá margvíslegum stofnunum. Engu að síður eru háskólar auðvitað suðupottur nýrra og nýstárlegra hugmynda og ég hef stundum sagt að það þarf stundum allra gáfaðasta fólkið til að aðhyllast vitlausustu hugmyndirnar og ég held að þess muni gæta innan háskólanna nú og í framtíðinni.