156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[18:02]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Það er líklega ástæða til að þakka hæstv. háskóla-, menningar- og sitthvað fleira ráðherra. Forseti fyrirgefur vonandi að við erum enn að læra nafnið og hæstv. ráðherra kannski líka, en ég treysti honum ágætlega til að sinna þessu embætti. Hæstv. ráðherra kynnti hér mál sem fljótt á litið lítur alveg þokkalega út, sýnist mér, þótt um sé að ræða enn eitt gamla reddingarmálið frá síðustu ríkisstjórn sem þessi nýja ríkisstjórn hefur tekið að sér að endurflytja. En það sem mér fannst standa upp úr í bæði ræðu hæstv. ráðherra og greinargerð frumvarpsins er að viðurkennt er að málið gangi ekki nógu langt, það taki ekki á öllu sem þurfi að taka á. Það tel ég vera alveg hárrétt. Þarna eru breytingar, sú stærsta kannski sú að í stað 30% niðurfellingar í lok náms verði 20% námslána felld niður í lok hverrar námsannar og 10% í lok námsins í heild til að hvetja menn til að halda sínu striki, halda áfram að mæta í tíma og taka prófin og allt þetta. Allt í lagi með það. Svo eru þarna ákveðnar breytingar varðandi vexti. Ég ætla að bíða með að fara í þá umræðu þangað til hugsanlega í 2. umræðu eða í seinni ræðu minni hér í 1. umræðu. Þarna er svona eitt og annað sem má teljast til bóta.

En meginatriðið er þetta: Þetta er ekki fullbúið mál. Það tekur ekki á heildinni. Þá verð ég að koma að því sem ýmsir hv. þingmenn hafa nefnt í þessari umræðu, að ekki er litið til þess hvað við eða skattgreiðendur fá fyrir peningana því að þetta er beinn stuðningur, þetta eru styrkir, hvatar til fólks til að fara í nám og halda áfram í námi. Er ekki orðið tímabært að við metum á þessu sviði eins og öðrum hvað skattgreiðendur fá fyrir peningana? Þessi ríkisstjórn, sú síðasta líka og jafnvel sú sem var þar á undan hafa verið tregar til að skoða í hvað peningarnir fara, hverju þeir skila. Það er mikið rætt um að menn séu að standa sig með því að auka framlög til ákveðinna málaflokka. En þá forðast þeir að ræða hverju þessi auknu framlög skila. Það tel ég að sé ágalli á þessu máli, eins og raunar er viðurkennt í upphafi greinargerðar, að ekki er litið til þess hvað fæst fyrir. Það er ekki að ástæðulausu að skattgreiðendur og við þingmenn sem fulltrúar þeirra ættu að vilja skoða hvað fæst fyrir peningana, af því að settir eru heilmiklir peningar í þessi stærstu kerfi okkar og menntakerfið er eitt af þeim. Hverju skilar þetta til baka?

Rökstuðningurinn fyrir því að veita styrki að nokkru leyti og að öðru leyti lán til að halda fólki við nám er að það sé æskilegt fyrir viðkomandi og fyrir samfélagið ekki síður að fólk mennti sig. Af hverju er það æskilegt? Það getur hjálpað einstaklingnum að fræðast en svo er jafnan bent á það að fjárfesting í námi skili sér margfalt til baka, sé sem sagt efnahagslega skynsamleg. En er það svo í öllum fögum og erum við að gera nóg af því að búa til hvata til þess að sem flestir, því að þetta snýst allt um hvata, fari í nám sem skilar samfélaginu því sem samfélagið þarf á að halda? Það hefur orðið bakslag, frú forseti, í þessum málum að mínu mati því að sífellt fleiri leita í nám sem skilar ekki endilega efnahagslegum ávinningi og of fáir í það nám sem skilar þeirri þekkingu sem við þurfum á að halda. Það er ekki æskilegt ef kerfið er til þess fallið að mennta sem flesta í Samfylkingarfræðum, sem sumir kalla skaðmenntun, fræðum sem ganga út á ákveðna pólitíska sýn, að innræta, kenna fólki að hafa ákveðna hugsjón og að annað sé slæmt og verja í þetta mörgum árum og heilmiklum peningum. Af hverju ættu skattgreiðendur, kjósendur t.d. Flokks fólksins, frú forseti, að vilja setja meiri og meiri peninga í það að fleiri og fleiri læri að verða Samfylkingarmenn eða Viðreisnarfólk? Það er orðinn lítill munur þar á núorðið.

Skaðmenntun er hugtak sem var gagnrýnt hérna áðan en ég er dálítið hræddur um að það geti í mörgum tilvikum verið réttnefni þegar horfið er frá því sem nám áður grundvallaðist á; að læra að beita gagnrýninni hugsun, læra að fræðast. Nú óttast ég að fleiri og fleiri útskrifist úr háskólanámi hafandi fyrst og fremst lært að ákveðnar skoðanir séu réttar og að viðkomandi sé ætlað að berjast fyrir þeim skoðunum. Þá kemur upp efnahagslegi vandinn við þetta, því að hvað á þetta fólk að fara að gera? Þá hafa viðbrögðin verið þau að búa til hlutverk fyrir fólkið sem fór í námið sem var kannski ekki þörf fyrir og gera það í rauninni að atvinnu að vera Samfylkingarmaður, Vinstri grænn, Viðreisnarmaður eða eitthvað slíkt. Við sjáum það á öðrum frumvörpum þessarar ríkisstjórnar og raunar þeirrar síðustu líka að þar eru menn önnum kafnir við að búa til slík störf til að fólk sem menntaði sig í einhverju sem var engin eða takmörkuð eftirspurn eftir hafi eitthvað að gera. Á meðan er hitt vanrækt. Á meðan erum við jafnvel að dragast aftur úr öðrum þjóðum á þeim sviðum þar sem mest þörf og mest eftirspurn er eftir þekkingu.

Ég vil líka og í tengslum við þetta gera athugasemd við að ekki séu meiri hvatar til þess að fólk ráðist í iðnnám og annað tæknilegt nám. Hv. þm. Sigríður Á. Andersen nefndi hér áðan flugnám. Það er t.d. eitt sem er mjög vanrækt miðað við þessar tillögur en einnig bara öll verk- og iðnþekking. Við þurfum á fleira fólki á því sviði að halda. Eins og einn vélvirki á Húsavík sagði við mig eitt sinn: Það geta ekki allir unnið í Reykjavíkurakademíunni. Við þurfum í stað þess að búa til fleiri Reykjavíkurakademíur að útvega þá menntun sem samfélagið þarf á að halda til þess að búa til verðmæti sem okkur skortir og stjórnvöld í síauknum mæli eyða í aðra hluti. Einhverjir þurfa að búa til verðmætin til að standa undir velferðinni. Þess vegna finnst mér fullkomlega eðlilegt að stjórnvöld, þegar þau eru með hvatakerfi eins og hér birtist, reyni á einhvern hátt að stýra því til hvers þeir hvatar leiði. Það á ekki að vera feimnismál að ræða það eins og mér fannst hæstv. ráðherra aðeins með viðbrögðum sínum hérna áðan gefa til kynna. Ég svo sem kannast við þetta og hef lengi orðið var við það á þeim árum sem ég hef verið í stjórnmálum að tilhneiging er til þess í háskólasamfélaginu — athugið að þið heyrið aldrei talað um iðnaðarsamfélagið en háskólasamfélagið er sérstakt samfélag og þetta samfélag hefur haft þá ráðandi skoðun að stjórnmálamenn, þeir sem borga launin, menntunina og framkvæmdina, eigi ekkert að hafa um það að segja hvað gert er við peningana. Þannig þekki ég t.d. dæmi um það að þegar ríkisstjórn sem ég átti aðild að bauðst til að styrkja háskóla sérstaklega á ákveðnum sviðum var jafnvel brugðist við með því að segja að menn vildu þá frekar ekki fá styrkinn heldur en að vera sagt hvað ætti að gera við hann. Þetta er hugsun sem við þurfum að komast út úr. Við þurfum á því að halda að geta nýtt og notað peninga skattgreiðenda á skynsamlegan hátt.

Hv. þm. Jens Garðar Helgason ræddi hér fyrr í dag um verðmætasköpun í prýðisgóðri ræðu um störf þingsins. Hvað þykir þingmönnum eins og hv. þm. Jens Garðari Helgasyni um það að á sama tíma og verið er að þrengja að þeim greinum sem skapa verðmætin sé ríkið að nota peningana sem teknir eru af þessum greinum í auknum mæli til þess að mennta fleiri á sviðum sem þessar sömu greinar munu þurfa að standa undir í framtíðinni? Við erum með á þingi, sem betur fer, hv. þm. Jón Pétur Zimsen sem ég segi alveg hreint út að er mikill fengur fyrir þingið. Hv. þingmaður þekkir menntamálin af eigin raun, hefur starfað á því sviði og hefur að undanförnu og reyndar um nokkurt skeið bent á ágallana, hvað mætti betur fara, og alltaf út frá hagsmunum nemendanna, á hvaða námsstigi sem þeir eru. En erum við hér með þessu máli, sem ég ítreka þó að er ekkert slæmt mál, svona redding frá síðustu ríkisstjórn, raunverulega að huga að hagsmunum nemendanna? Ég er ekkert að huga að hagsmunum samfélagsins en væri ekki hægt að huga betur að hagsmunum nemendanna með þeim hvötum sem myndaðir eru í frumvarpinu heldur en raun ber vitni? Ég held að hægt sé að bæta þetta frumvarp heilmikið.

Af því að það varð smáumræða hér áðan um hugtakið skaðmenntun, Samfylkingarfræði eða hvað menn vilja kalla það og hv. þm. Snorri Másson lá undir ámæli frá hæstv. ráðherra fyrir að nota það hugtak, þá held ég að það sé best að útskýra það og eins að bregðast við svari hæstv. ráðherra, svona glósum um að varla ætluðu menn að leggja til formlega rannsókn á því hvað skaðmenntun væri. Hér í gær held ég að hafi verið mælt fyrir öðru frumvarpi, enn einu afgangsmálinu frá síðustu ríkisstjórn, um jafnréttismál. Það átti að heita að vera um jafnréttismál, fyrrnefndur hv. þm. Snorri Másson ræddi það mál og fékk nú háðsglósur fyrir frá ráðherranum að leyfa sér að gagnrýna málið, sem var reyndar óbreytt frá Vinstri grænum eins og ráðherrann gekkst við. En það mál veitti okkur ákveðna innsýn í ekki bara Samfylkingarfræðin eða Vinstri grænu fræðin, sem eru svipaður hlutur, heldur einnig í það að menn geta nú tekið að sér að rannsaka ýmislegt. Hér vitna ég í skrif fyrrnefnds hv. þm. Snorra Mássonar um þetta mál en hann segir, með leyfi forseta:

„Fyrst skal uppræta mögulegt ójafnrétti í niðurgreiddri rafbílaeign yfirstéttar: „Samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða við úthlutanir úr Loftslags- og orkusjóði. Markmið aðgerðarinnar verði að rannsaka áhrif styrkveitinga sjóðsins til rafbílakaupa á jafnrétti kynjanna.“ Það kemur reyndar fram í skýringum að eins og stendur virðast hinir fáránlegu krónutölurafbílastyrkir helst hjálpa konum sem kaupa aðallega smáa rafbíla. Engu að síður á að rannsaka áhrifin sérstaklega.“

Menn taka því að sér að rannsaka ýmislegt og því þá ekki að rannsaka áhrif skaðmenntunar sem leiðir til svona frumvarpa eins og þess sem var rætt hér í gær? Ég held að það væri mikill fengur í því fyrir samfélagið, bæði efnahagslega en einnig samfélagslega, og gott ef fleiri fengju tækifæri til að mennta sig í einhverju sem menn geta svo jafnvel alla sína ævi starfað við glaðir vitandi það að þeir eru að gera samfélaginu gagn og auka verðmætasköpun sem nýtist samborgurunum.

Frú forseti. Tími minn er á enda runninn en ég er ekki búinn með ræðuna og bið yður því að skrá mig aftur á mælendaskrá.