Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína. Ég ætla að taka upp hanskann fyrir vin okkar, hæstv. ráðherra Loga Einarsson, hvað þetta varðar og horfa aðeins í aðra átt en hv. þingmaður í sinni ræðu. Ég tel að það séu alveg tækifæri í þessu frumvarpi að stíga skref til betri vegar og því langar mig að beina því til hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hvort við ættum ekki að horfa meira til þess að beita ívilnunum sem snúa að endurgreiðslu varðandi það að mennta fólk í ákveðnum starfsgreinum, t.d. í læknisfræði og dýralækningum, til að fá það út á land til að sinna verkefnum, vegna þess að það hefur verið vesen og vandamál fyrir okkur að fá menntaða einstaklinga út á land.