156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[18:19]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Í fyrsta lagi er það alveg rétt hjá hv. þingmanni að auðvitað á ekki að kenna hæstv. ráðherra um þetta mál. Þetta er afgangsmál frá síðustu ríkisstjórn frá Framsóknarflokki eða einhverjum öðrum flokki og hæstv. ráðherra er að gera sitt besta í að koma málum út. Auk þess vil ég taka heils hugar undir með hv. þingmanni sem kemur hér inn á mál sem ég ætlaði einmitt að ræða í seinni ræðu minni, um að hvatarnir séu til þess fallnir að ekki bara manna þau störf þar sem þörfin er mest heldur líka að ýta undir aðra æskilega þróun, eins og byggðaþróun, og einnig að við fáum sem flesta heim sem hafa farið til útlanda í nám og menntað sig í fræðum sem við þurfum á að halda. Ég tek þessu andsvari hv. þingmanns í raun fagnandi og tek undir með honum að öllu leyti.