Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Ég þakka gott svar. Ég þarf að upplýsa hv. þingmann um að sá sem hér stendur á töluverðan þátt í því að svona er nú komið fyrir þessu máli þar sem hann var framsögumaður á tímabili árið 2020 við það að reyna að koma því áfram, svo það sé nú sagt, og málið er mér svolítið skylt, enda svo sem tilheyri ég Framsóknarflokknum eins og kom fram í máli hv. þingmanns.
Mig langar í seinna andsvari að velta því fyrir mér hvort Miðflokkurinn sé ekki, eins og með svo margt annað, með lausnina á því hvernig við eigum að taka utan um svona lánafyrirkomulag. Að mínu mati þurfum við að hafa þetta á félagslegum grunni. Hvernig sér Miðflokkurinn þetta fyrir sér? Ég geri mér grein fyrir því að það er mjög erfitt að svara því á einni mínútu en ég bíð spenntur eftir seinni ræðu hv. þingmanns.