156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[18:21]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Jú, það er eðlilegt að hafa þetta á félagslegum grunni þegar stuðningurinn er félagslegur, þegar hann kemur frá skattgreiðendum. Eins og hv. þingmaður sagði þá er ekki hægt að rekja heila stefnu í málaflokknum á einni mínútu en ég teldi til að mynda æskilegt, svo litið sé til fordæma, að það væri innbyggður hvati varðandi eftirgjöf námslána ef til að mynda læknar færu til starfa á þeim svæðum þar sem þörfin er mest. Einnig að fyrir lægi hvati til niðurfærslu námslána ef menn hefðu menntað sig erlendis á ákveðnum sviðum. Það þýðir ekkert að hafa öll svið undir, frú forseti, ekki getum við verið að niðurgreiða lán í útlöndum í Samfylkingarfræðum, en ef menn hefðu menntað sig á þeim sviðum sem samfélagið þarf á að halda þá liggi fyrir hvati til að færa niður lánin.