156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[18:23]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég get tekið undir með hv. þingmanni að örvun iðnnáms skiptir máli og að örva aðrar greinar sem hafa bein og jákvæð, fljót, skjót og góð efnahagsleg áhrif. En það er stundum erfitt að leggja mælikvarða á það hvað skilar ávinningi og hvað ekki. Það myndi einhver geta haldið því fram að heimspeki, sagnfræði og listir skili ekki beinum efnahagslegum ávinningi og ég er ekki einu sinni viss um að Andy Warhol hafi á sínum tíma, þegar hann fór í Carnegie Institute of Technology, áttað sig á því að hann ætti eftir að skapa verðmæti sem auðjöfrar fjárfesta frekar í heldur en gjaldmiðlum, gulli eða fyrirtækjabréfum.

Mig langar að spyrja: Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér að hann ætli að komast að því (Forseti hringir.) hvað sé skaðmenntun og hvað ekki? Hann spurði sjálfan sig: Hví ekki að skoða það? Hvernig ætlar hann að fara að því?