Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Þetta var prýðisathugasemd og gild frá hæstv. ráðherra. Það er ekki alltaf hægt að sjá fyrir hvaða nám nýtist best en ég myndi þó telja að þar ætti að halda í hina vísindalegu hefð, háskólahefðina sem er árhundraða ef ekki árþúsunda gömul, um að námið ætti að snúast um að fræðast og opna hugann, læra gagnrýna hugsun og geta metið hlutina fremur en nám sem stundum er kallað gremjufræði og virðist snúast um að innræta ákveðnar skoðanir. En hvernig á að gera þetta? Ég myndi leggja til — þó að rannsóknin hafi ekki farið fram er greinilega full þörf á henni — að menn byrjuðu ofan frá, þ.e. með því að skilgreina hvar er vöntun, hvar er þörf fyrir fleira fólk á ákveðnum sviðum og búa þá til sérstaka hvata fyrir það frekar en að byrja neðan frá og reyna að skera af á þeim endanum.