156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[18:25]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að það sé einmitt mikil hætta á því ef stjórnmálamenn fara að ákveða hvað við þurfum á að halda að þeir hitti ekki naglann endilega alltaf á höfuðið. Hlutirnir koma oft úr óvæntustu átt. En ég hlýt að þurfa að ganga eftir því og spyrja, af því að hér eru nefnd skaðmenntun, gremjufræði og innræting, hvað nákvæmlega á hv. þingmaður við? Hvar finnur hann þess stað? Er hann með einhver tiltekin dæmi? Og ef þau eru til, hvað ætlar Miðflokkurinn að gera í því?