Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Ég var nú ekki að segja að stjórnmálamenn ættu sjálfir að meta þetta. Við þurfum faglegt mat. Við þurfum fræðimenn til að meta það hvað okkur skortir en það þurfa að vera réttu fræðimennirnir; fræðimenn sem eru raunverulega menntaðir í því að meta hvað snýr upp og hvað snýr niður en ekki einhverjir úr gremjufræðunum. Og hvað er það? Jú, það eru fræði sem virðast fara mjög vaxandi um allan hinn vestræna heim og ekki hvað síst á Íslandi og virðast fyrst og fremst ganga út á það að útskýra fyrir nemendum hvað allt sé ómögulegt og gera það raunar með því að snúa oft staðreyndum á haus og sögunni. Svo útskrifast menn úr þessu og fara að starfa í vandamálabransanum. Hvað er vandamálabransinn, frú forseti? Jú, það eru þau svið þar sem menn óttast ekkert eins mikið og árangur því að ef árangur næst þá þarf bakslag til að réttlæta áframhaldandi starf.