156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[18:27]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir hans framsögu hér og langar að beina til hans spurningu sem snýr í rauninni að því sem er svolítið búið er að ræða hérna en ég vil kannski fara aðeins í nánari útfærslu. Hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson talaði um að hafa hvata til þess að fara út á land og ég held að það sé mjög gott þar sem læknaskortur er. Og auðvitað veit hv. þingmaður, sem er bóndi, að líka er dýralæknaskortur. Ég vil velta upp þeirri spurningu: Ættum við að vera með mismunandi prósentu, mismunandi afslátt? Ef það er virkileg þörf á eðlisfræðingum, stærðfræðingum eða verkfræðingum í landinu, ættum við að hafa þá hvata að vera með hærri eftirgjöf á námslánum fyrir þær stéttir sem í rauninni er mikil þörf á? Það geta verið verknámsstéttirnar. Það væru þá hvatar til þess að fólk fari í það nám, til að fá meiri endurgreiðslu.