Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Já, en þetta er það sem við gerum í fjárlögum. Menn reyna að meta hvar þörfin er mest fyrir peninga og hvar þeir nýtast best. Því ekki að gera það á þessu sviði líka? (menningarrh.: Á að fá fræðimenn til að ákveða hvað er mikilvægt og hvað ekki?) Ja, fræðimenn skrifa nú eiginlega öll frumvörp þessarar ríkisstjórnar og annarra. Rétt eins og hæstv. ráðherrar treysta þeim til að skrifa fyrir sig fjárlagafrumvarp, af hverju ekki að treysta þeim til að meta þetta atriði, hvar þörfin er mest, og búa til hvata þar? Ég legg áherslu á að með þessu er ekki verið að refsa þeim. Verið er að búa til hvata þar sem þeirra er þörf eins og við þekkjum dæmi um frá öðrum löndum. Búnir eru til hvatar þar sem skortir fólk á landsbyggðinni í Noregi o.s.frv. Einhverjir meta það hvar þörfin er. Við erum með Byggðastofnun sem metur m.a. slíka hluti og því ekki að gera það á þessu sviði? Mennt er máttur.
(Forseti (KÁB): Forseti minnir á að samtöl eru ekki leyfð í þingsal.)