156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[18:30]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er nefnilega þannig að það er verðmætasköpunin í landinu sem stendur undir akkúrat því sem við erum að ræða hér í dag. Háskólarnir, velferðarkerfið allt er borgað af verðmætasköpun. Því er það áhyggjuefni, virðulegur forseti, hvernig sótt er að verðmætasköpuninni. Í staðinn fyrir að stækka kökuna eru menn að minnka kökuna. En það er önnur umræða. Ég held að akkúrat í þessu sé kannski að mörgu leyti óþarfi að vera mikið að ræða það við fræðimenn um hvers lags starfsmenntun er þörf á fyrir þjóðina eða þörf á akkúrat núna í efnahagslífinu. Þess vegna langar mig að spyrja hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson: Við höfum oft séð að Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð o.fl. þekkja til hvar þörf er á fleiri menntuðum einstaklingum. Eru það ekki þessir aðilar sem eru einmitt til þess bærir að leggja mat á það hvar skórinn kreppir?