Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Jú, ég held það. Þegar ég fer tiltölulega frjálslega með hugtakið fræðimenn þá inniheldur það m.a. og ekki hvað síst þá sem raunverulega starfa á þessum sviðum. Í stað orðsins fræðimenn hefði ég kannski átt að segja þeir sem þekkja best til á sínu sviði og hvar þörfin er mest. Ég vek athygli á því að þetta er engin tímamótahugmynd því að þetta er gert. Ríkisstjórnin í heild og stöku ráðherrar með sitt ráðstöfunarfé eru stöðugt að styrkja ákveðna hópa og ákveðin svið til þess ýmist að mennta fólk á því sviði eða reka ákveðinn áróður o.s.frv. Það er ekki eins og þetta sé eitthvað alveg nýtt. Það sem þó er kannski nýtt er að ég tel að það mætti með slíkan stuðning og slíka hvata líta til þess sem samfélagið þarf mest á að halda.