Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu og hugleiðingar um menntun, þ.e. að skólaganga sé ekki það sama og menntun og að fólk geti orðið þokkalega vel menntað þó að það sé ekki í skóla og það sé til eitthvað sem er menntun til gagns og einhver til ógagns. En ég held að þessi umræða þurfi að fara víðar en akkúrat að beina spjótum að þeim greinum sem hann hefur verið að ræða hér og það eru þá, eins og hann vill kalla þetta, þessi samfélags- eða Samfylkingarfræði eða hvað það er. Ég held að það eigi ekki síður að skoða þá hagfræðinga sem sögðu það jafnvel hér í aðdraganda hrunsins að allt væri alveg á bullandi uppleið, bara korteri fyrir hrun, og að það væri það gott að það væri vísasti vegurinn til að tryggja örugga framtíð fiskstofnanna að fara í alfriðun á þeim í tvö ár, 2008. Það sem er kannski sérkennilegt við þetta er að (Forseti hringir.) umræddir hagfræðingar sem ráðlögðu þetta eru enn þá að ráðleggja þjóðinni. Þannig að ég skora (Forseti hringir.) á hv. þingmann að líta víðar yfir sviðið en akkúrat á þá menntun sem hann hefur nefnt hér í umræðunni.