Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Já, hagfræði er ágætisdæmi um fræðigrein þar sem menn hafa mjög oft rangt fyrir sér og eru eiginlega aldrei sammála sín á milli. Hagfræði er ekki beinlínis eins og verkfræði. Í verkfræði gera menn þó mistök líka og stundum hrynja brýr eða hús og þá reyna menn að finna út úr því hvað fór úrskeiðis og hvernig megi bæta útreikningana og fræðin. Það er hins vegar erfiðara í hagfræði sem er að miklu leyti á félagshyggjusviðinu, en við verðum að halda áfram að reyna. Við verðum að halda áfram að reyna að átta okkur á því hvernig hagkerfið virkar. En þá er aðalatriðið, og ég tek bara undir með hv. þingmanni hvað það varðar, að þeir sem hafa reynst hafa rétt fyrir sér og verið með fræði sem gátu spáð rétt fyrir, að menn lyfti þeim og kenningum þeirra frekar (Forseti hringir.) en þeim sem höfðu alltaf rangt fyrir sér.