156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[18:35]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Förum nú aðeins yfir í raungreinar, ef það má kalla þær það. Við höfum hér stofnun sem hefur haft með stjórn fiskstofnanna að gera og hver og ein einasta tegund sem hefur verið undir stjórn umræddrar stofnunar — aflinn hefur minnkað. Nú bara síðast berast fréttir af því að tegund sem fór í kvóta í fyrra, það er bara óskað eftir því að það sé dregið niður um 40–50% á milli ára, þó svo að það hafi verið farið nákvæmlega eftir ráðgjöfinni. Þannig að ég held að menn verði að vera opnari fyrir því að beita gagnrýninni hugsun víðar og skoða hlutina upp á nýtt og horfa bara til árangurs í stað þess að vera að einblína hér á afmarkaðan hluta fræðasviða. Þessi hugsun þarf að fara víðar og í rauninni í öllu (Forseti hringir.) sem við tökum okkur fyrir hendur, þ.e. að halda í heiðri gagnrýninni hugsun. Því fagna ég þessum viðhorfum sem komu hér fram.