Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Ég get alveg tekið undir þetta. Aðalatriðið er að fræðin snúist um gagnrýna hugsun og ekki skemmir fyrir ef menn geta tekist á við það þegar þeir hafa rangt fyrir sér og skipt um skoðun. Út á það á nám að ganga, að læra að hugsa og greina hlutina. Það sama má kannski segja um hafrannsóknir, eða fiskifræði eða hvað menn vilja kalla það, og hagfræðina að það er erfitt að hafa alltaf rétt fyrir sér á því sviði þó að menn reyni að komast nær og nær sannleikanum. Annars vegar snýst þetta um að rannsaka og reyna að skilja hegðun fólks og hins vegar hegðun fiska og kannski er ívið auðveldara að skilja hegðun fiska heldur en fólks. En þetta eru mjög stór verkefni sem kalla á áframhaldandi rannsóknir sem þurfa þó, og ég tek undir með hv. þingmanni með það, að byggjast á gagnrýninni hugsun og viljanum til að læra.