Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Mér þykir það afskaplega leitt ef ég verð til að tóna niður þessa ansi skemmtilegu umræðu sem hefur verið hér síðasta hálftímann alla vega. Hér hafa ýmsar mjög skemmtilegar athugasemdir komið fram og væri gaman kannski að koma örlítið að því hér síðar í minni ræðu. Ég ætlaði að byrja á því að ræða þetta frumvarp sem hér er og almennt um háskólamenntun og aðkomu ríkisins og hins opinbera að því að styðja ungt fólk til mennta. Við erum með 20.000 námsmenn í háskólum landsins. Það eru rúmlega 5% þjóðarinnar ef mér reiknast rétt til og ef við tökum nú frá eldra fólk og yngra er það mun hærra hlutfall. Kannski eru þá tæplega 10% þjóðarinnar að stunda háskólanám á hverjum tíma. Menn geta haft skoðanir á því og ég hef svo sem engar sérstakar athugasemdir við það. Allt nám sé gott og til góðs — þekkingarleit er sannarlega til góðs. Það er mikilvægt að unga fólkið okkar mennti sig og háskólanám hefur skilað þjóðinni þangað sem við erum í dag, þ.e. ein auðugasta þjóð í heimi. Við búum svo vel að hafa hér atvinnugreinar sem eru öflugar og skapa þann auð sem við öll njótum góðs af og einnig námsmenn.
Þetta frumvarp er til að breyta og laga örlítið námslánakerfið. Mér sýnist og heyrist að það sé verið að rýmka möguleika námsmanna til að fá námsstyrki, m.a. að fólk geti skipt um námsbrautir án þess að missa tækifæri til að fá þessa svokölluðu námsstyrki. Ég hef svo sem ekki neitt við það að athuga en auðvitað vil ég vara við því að það sé rýmkað of mikið. Það verða að vera ákveðnar kröfur þótt erfitt sé. Það verða auðvitað að vera einhverjar kröfur til að hljóta þessa námsstyrki, strangar kröfur, og ég er á móti því að þetta verði rýmkað enn frekar. Þetta er töluvert. Þegar ég var í námi var ekkert slíkt kerfi. Námsmenn borguðu bara námslánin til baka. Það voru einhverjir afslættir af vöxtum og hafa verið en þarna er þessu breytt í styrk. Ég er fylgjandi því en vara samt við því að þetta sé rýmkað of mikið.
Auðvitað á að hvetja fólk til að klára sitt nám á eðlilegum tíma og einnig að hvetja fólk til að sækja nám sem er tengt atvinnulífinu og það er nú kannski grunnatriði í þessari umræðu sem átti sér stað áðan um þetta nýyrði, skaðmenntun, sem er víst uppfinning hv. þm. Bergþórs Ólasonar og kom mikið til umræðu hér áðan og ég er ekki alveg viss hvaða skoðun ég hef á þessu. Þetta er nýtt fyrir mér. Ef ég á að reyna að skilgreina þetta, frú forseti, held ég að þetta sé svolítið tengt því hversu mikil tengsl námsins eru við atvinnulífið. Ég held að þetta sé einhvers staðar þar. Þeim mun minni bein tengsl við atvinnulífið, þeim mun líklegra er að það sé hægt að tala á þennan veg. Hins vegar tek ég undir með hæstv. ráðherra að það er ekkert útséð með það hvernig einstaklingarnir koma út úr námi, jafnvel þótt þeir hafi farið í nám eins og heimspeki sem er alls ekki tengt atvinnulífinu beint. Hv. þm. Snorri Másson skilgreindi skaðmenntun sem svo að námsmenn væru ruglaðri í ríminu heldur en þeir voru þegar þeir fóru í námið. Það væri svona skilgreiningin á skaðmenntun, þeir kæmu út ruglaðri heldur en þegar þeir hófu námið. Hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson útskýrði þetta sem Samfylkingarfræði og þar væri kennd ákveðin fórnarlambavæðing og ætti sér stað innræting ákveðinna hugmynda.
Auðvitað hefur ekkert farið fram hjá mér sem áhorfanda að samfélaginu að háskólamenntun hefur töluvert breyst. Það hefur á einhverjum sviðum svolítið verið slakað á þeim kröfum sem voru í hávegum hafðar hér, fyrir áratugum síðan reyndar, að aðferðafræði rannsókna væri t.d. fastmótuð og höggvin í stein í raun og veru. Það hefur verið slakað á því. Ég held að það sé nú nokkuð augljóst og á almannavitorði.
Að öll menntun leiði til betri einstaklinga — já, það er kannski spurningin, hvort þetta geti skaðað, hún geti verið á þann hátt að hún gæti hugsanlega skaðað viðkomandi einstakling. Auðvitað getur hún það ef það er markviss innræting eins og hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ýjar að. Auðvitað getur það skaðað ef námsmenn koma út úr háskólum raunverulega með hugmyndir um einhvers konar fórnarlambavæðingu og sjá fyrir sér og fara í þennan svokallaða vandamálabransa. Ég get kannski tekið undir þetta. Þetta er svolítið þannig. Þessi vandamálabransi er ansi áberandi meðal viss hóps í samfélaginu í dag.
Ég vil kannski einnig benda á að mér finnst að háskólarnir og skólarnir almennt eigi auðvitað að vera í meiri tengslum við atvinnulífið. Það hefur skilið töluvert á milli, frú forseti, að mínu mati. Mjög stór hluti háskólanema er raunverulega ekki að fara í nám sem er í beinum tengslum við atvinnulíf og verðmætasköpun í landinu. Þetta leiðir hugann að t.d. iðnnáminu. Við höfum alls ekki verið nógu dugleg við að efla iðnnám í landinu á undanförnum árum og það er vöntun á iðnmenntuðu fólki á Íslandi í dag á mörgum sviðum og við þurfum að gera betur þar. Margt annað má nefna eins og flugnám, nemar þar geta ekki leitað í námslán nema að litlum hluta. Þetta verður auðvitað sífellt umfjöllunarefni okkar hér á þingi og ég sé í greinargerðinni að þetta er árangur af vinnu síðustu þriggja ára þar sem þessi lög voru endurskoðuð og átti að endurskoða og það er boðað í frumvarpinu líka að þessari endurskoðun sé ekki lokið og von á enn frekari breytingum. Ég vona að þær breytingar, þegar þær koma inn síðar, taki svolítið mið af þessari fjörugu og athyglisverðu og góðu umræðu sem hefur verið hér í dag og verður í nefndinni þegar þetta frumvarp fer í allsherjar- og menntamálanefnd.
Við þurfum miklu oftar, frú forseti, tel ég, að taka svona djúpar umræður einmitt um menntun, gæði menntunar, hvert menntun okkar sem þjóðar stefnir og skiptast á skoðunum, andstæðum skoðunum greinilega, og taka slaginn þar, þannig að ég fagna þessari umræðu, frú forseti.