Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Þetta var athyglisverð ræða og mér fannst áhugavert að heyra áhyggjur Miðflokksmanna hér af því að kröfur í háskólum hafi farið niður á við og almennt áhyggjur af hnignandi stöðu ungs fólks eftir að hafa verið í háskóla. Það væri ágætt að fá aðeins nánar um þessa hluti og jafnvel um að fólk sé að skaðast að stórum hluta sem fer í framhaldsnám í háskóla. Það væri ágætt þannig að þetta liggi ekki hérna eins og einhverjar dylgjur í umræðunni að fá þá skýrt hvað það er sem Miðflokkurinn á við, hvaða greinar það eru sérstaklega, þannig að við náum einhverju áfram með þessari miklu umræðu sem á sér hér stað. Það tel ég vera nauðsynlegt þannig að það liggi einfaldlega skýrt fyrir að það sé ekki verið að tala um allt og ekkert og við fáum það fram í umræðunni hvar vandamálið er sem Miðflokkurinn telur að þurfi að leysa. Hvaða greinar eru það? Þannig að það sé ekki verið að tala um allt og ekkert og verið með hálfgerðar dylgjur um ungt fólk og stöðu þess í samfélaginu.