156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[18:49]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Frú forseti. Við erum nú einmitt að ræða þetta hér, hv. þm. Sigurjón Þórðarson. Við erum að ræða þetta fram og til baka. Hér hafa komið ýmsar skýringar á því hvað menn eru að meina. Ég í minni ræðu tók nú ekki kannski mjög djúpt í árinni með það að ég sæi þetta beinlínis vera að gerast í samfélaginu en ég tók svona boltann sem aðrir þingmenn höfðu gefið hér á loft fyrr í dag og taldi ákveðin merki þess að háskólasamfélagið væri að færa sig fjær atvinnulífinu og verðmætasköpun í landinu, að það væru ákveðin merki um það að við værum að fjarlægjast raunverulega þessa verðmætasköpun. Það er óumdeilt að nám í upphafi, ef við lítum bara svona 100 ár aftur í tímann, var bara beinlínis undirbúningur undir eitthvert starf, þú lærðir landbúnaðarfræði eða eitthvað slíkt. Síðan hefur þetta þróast og við erum bara að ræða um það hvert við erum komin í þessari þróun. Erum við eitthvað afvega í þessu eða ekki? Við getum deilt um það og það góða við þessa umræðu núna er að við erum að skiptast á skoðunum um þetta, hvar við erum stödd núna og á hvaða leið við erum. Það er það sem er gagnlegt í þessari umræðu. Ég er ekki að fullyrða að við séum komin út í skurð en það eru ákveðin merki um að við séum að fjarlægjast verðmætasköpun, atvinnulíf. Atvinnulífið hefur sjálft tjáð sig um það að námið sé að fjarlægjast atvinnulífið.