Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á því að taka fram að ég er hér að halda fyrstu ræðu mína um þetta mál sem hér liggur fyrir er varðar Menntasjóð námsmanna. Það hefur yfirleitt verið þannig að þegar málefni Menntasjóðsins eru rædd þá hafa þingmenn viljað taka til máls vegna þess að þetta er auðvitað mikilvæg grunnstoð í menntakerfinu okkar.
Virðulegur forseti. Ég segi þetta vegna þess að mér líkar ekki samfélagsmiðlaauglýsingar Samfylkingarinnar þar sem talað er um málþóf þó að þingmenn tjái sig um mikilvæg mál. Að því sögðu átti ég von á meiru í málinu sem hér liggur fyrir, virðulegur forseti og hæstv. ráðherra. Af hverju segi ég það? Vegna þess að ég var formaður allsherjar- og menntamálanefndar á síðasta kjörtímabili og þá var unnin skýrsla fyrir þáverandi hæstv. ráðherra þessa málaflokks og hún var kynnt okkur í allsherjar- og menntamálanefnd og það var sérstök umræða um það hér í þinginu. Í kjölfarið kom svo þáverandi hæstv. ráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, með lítið frumvarp, svona svolítið eins og þetta er hérna, þar sem var verið að taka á ákveðnum þáttum sem taldir voru mjög mikilvægir þá. Það var náttúrlega aðallega ábyrgðarmannakerfið og það var mikil samstaða um það í nefndinni að gera það. Það var líka verið að auka aðeins sveigjanleika þannig að nemar gætu farið á milli námsbrauta. Ástæðan fyrir því að ég segi að ég hafi átt von á meiru er að þáverandi hæstv. ráðherra hafði svo boðað heildarendurskoðun á þessari skýrslu og ég veit að það var fenginn hæfur maður inni í ráðuneytinu til að vinna að slíkri endurskoðun.
Ég bara velti aðeins fyrir mér hvernig við eigum að taka á þessum mikilvæga sjóði okkar, hvort það sé skynsamlegt að við gerum alltaf svona smávægilegar breytingar í einu. Ég sat líka á þingi þegar Menntasjóðurinn varð til, eða sem sagt 2020 þegar lögin komu fram. Þáverandi menntamálaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, taldi sig vera með ofboðslega mikilvægar og góðar breytingar í höndunum, hafði unnið að því töluvert og taldi að þarna værum við komin með alveg ofboðslega góðar breytingar. Það var samt sem áður, og það var kannski m.a. vegna vinnunnar hér í þinginu, skýrt að það ætti að vinna þessa skýrslu og það þyrfti að endurskoða þetta og það var bráðabirgðaákvæði í lögunum. Reynslan hefur sýnt okkur að við höfum því miður ekki náð fram þeim markmiðum sem voru í því frumvarpi. Það er kannski þess vegna sem ég segi þetta, virðulegur forseti, vegna þess að ég óttast að það sé jafnvel enn þá erfiðara að ná slíkum markmiðum fram þegar við bara örstillum einhverja takka hér og þar.
Að því sögðu eru kannski þær breytingar sem standa hér upp úr þær sem varða umbunarkerfið. Svona í fyrstu slær það mig ágætlega. Það má auðvitað velta fyrir sér hvort það hafi einhvern veginn ranga hvata í för með sér en mér finnst líka að það þurfi að horfa á fjölbreytileikann, og það getur alls konar komið upp í lífi fólks, þannig að þetta auki sveigjanleikann, enda sé ég hér í greinargerðinni að flestir hafi nú almennt verið ánægðir með þá breytingu, umsagnaraðilarnir, þannig að maður gerir kannski frekar ráð fyrir því að það sama verði uppi á teningnum þegar málið verður tekið til umfjöllunar í hv. allsherjar- og menntamálanefnd og þangað koma inn umsagnir.
Ég sé líka að hér hafa margir talað fyrir því að færa okkur enn nær styrkjakerfinu eins og þekkist annars staðar á Norðurlöndunum. Ég hef, virðulegur forseti, haft þá skoðun að það færi betur á því að vera með styrkjakerfi. Mér hefur líka fundist ágætar hugmyndir sem hafa verið tengdar við Noreg en ég held að við séum með það inni í kerfinu okkar núna að það sé möguleiki á því að fá líka aukna niðurfellingu þegar raunverulega er skortur í viðkomandi starfsgrein eða, hvað eigum við að segja, sérfræðimenntun úti á landi, þennan byggðavinkil sem Norðmennirnir hafa verið frægir fyrir. Ég set mig ekki upp á móti því, alls ekki, og held að það geti gagnast vel en það er alltaf þetta með hvatana.
Ég minnist þess að við fengum fulltrúa frá námsmönnum inn í allsherjar- og menntamálanefnd þegar við vorum að fjalla um síðustu breytingu. Þau voru alveg ofboðslega æst í að fá að sjá meiri breytingar. Þess vegna sakna ég þess mjög — ég verð að viðurkenna að ég heyrði ekki alla framsögu hæstv. ráðherra en það er svo sem boðað að það komi meira og ég bara hvet hann áfram í því að koma með það af því að ég held að það sé nauðsynlegt að taka djúpa og góða umræðu um Menntasjóðinn, markmiðin og hvernig við ætlum að ná fram þessum markmiðum.
Ég heyrði svona aðeins af umræðu hérna í þingsal áðan um gagnsemi náms. Um það vil ég segja að ég held að það sé varhugavert að pólitíkusar séu með einhverjum hætti að stíga fast til jarðar í því að ákveða hvaða nám sé gagnlegt og hvaða nám sé það ekki. Að því sögðu hefur það verið stefna stjórnvalda — og ja, ég hef alla vega ekki heyrt núverandi hæstv. ráðherra tala gegn því, við samþykktum hér á síðasta kjörtímabili þingsályktun. Nú man ég ekki alveg heitið á því en það var frá Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, sem þá var háskólaráðherra, um þekkingarsamfélag, held ég að hún hafi heitið. Þar er auðvitað talað um þessar STEM-námsbrautir og mikilvægi þess að við þurfum að fjölga fólki sem fer á þær námsbrautir og það hefur verið reynsla allra landa sem eru að standa sig virkilega vel í nýsköpun. Við eigum margar skýrslur, bæði frá fræðimönnum og inni í Stjórnarráðinu, sem fjalla um mikilvægi þess að við eflum enn frekar nýsköpun og tækniþróun hér á landi. Til þess þurfum við fólk sem hefur þannig bakgrunn, þannig að ég tel að það hafi verið mjög jákvæð breyting sem gerð var á kostnaðarmódelinu fyrir háskólana á síðasta kjörtímabili, að reyna að búa til hvatana í kringum það að hvetja háskólana til að taka inn í það nám og það var mjög tímabært. En ég veit ekki hvaða hlutverk Menntasjóðurinn gæti svo sem spilað í þeim efnum. Eins og ég segi, þetta er rosalega fín lína. Ég held að það sé gott að við séum með stefnur og markmið um þekkingarsamfélagið, um nýsköpun og tækniþróun og það kann að þýða það að við ættum að vera með einhverja hvata. Ég veit að til að mynda var farið í átak þegar okkur vantaði kennara. Þá fóru stjórnvöld í átak í því að fjölga þeim sem myndu sækja um kennaranám. Það held ég að hafi virkað mjög vel. Í mörg, mörg ár töluðum við um nauðsyn þess að krakkar myndu sækja í iðn- og tækninám, fram yfir bara hefðbundið stúdentspróf. Það virkaði líka vel þannig að það er hægt að ná ýmsu fram með slíkum hvötum.
Mig langaði líka, virðulegur forseti, aðeins að ræða frítekjumarkið. Ég veit að það hefur verið svolítil umræða úti í samfélaginu um þetta og það var eitt af því sem námsmönnum var mjög umhugað um að ræða við okkur í allsherjar- og menntamálanefnd á sínum tíma. Nú hækkaði fyrrverandi ráðherra það og sitt sýnist hverjum um hvort það eigi yfirhöfuð að vera eitthvað slíkt til staðar. Ég hef setið langa og mjög skemmtilega fundi með fulltrúum nema frá öllum háskólunum þar sem þessi mál hafa verið svolítið til umræðu og umræðan um það svolítið verið með neikvæðum hætti, að íslenskir nemar stundi svo mikla vinnu með háskólanámi og það kunni m.a. að vera ástæðan fyrir því að þessar heimildir sem hafa verið til staðar hjá sjóðnum eru ekki fullnýttar. Ég ætla ekki að taka undir að það sé alslæmt. Ég held að það geti að sumu leyti verið bara ágætt að nemar sem koma út úr háskólanámi hafi líka ákveðna starfsreynslu á bakinu. Ég held að það hafi verið í gegnum tíðina það sem greindi oft íslensk ungmenni frá ungmennum annars staðar að þau höfðu kannski meira verkvit, höfðu ekki bara verið í skólanum og átt svo löng og góð sumarfrí. Þannig að ég líka geld varhuga við því að við séum með of mikla stýringu hvað það varðar. Ef nemar vinna með skóla kunna líka bara að felast í því ákveðin tækifæri.
Aðeins varðandi það sem hér var rætt áðan varðandi atvinnutengingu háskólanna, aftur þá held ég að hæstv. ráðherra og þingmenn þurfi almennt að virða mjög akademískt frelsi háskólanna. Það breytir samt sem áður ekki, eins og ég sagði áðan, mikilvægi STEM-greinanna og mikilvægi þess að það sé líka nám sem er beint atvinnulífstengt. Það er ekki af hinu slæma, það getur líka verið gott. Ég minnist þess sjálf að ég valdi einmitt háskóla sem var með mjög mikla atvinnutengingu bara út af því, þar lá áhugasvið mitt.
Ég heyrði líka að flugnámið var nefnt hér. Það var eitt af því sem við höfum fengið athugasemdir við í allsherjar- og menntamálanefnd, að auka stuðning og lánamöguleika þeirra sem það nám sækja, sem er mjög dýrt nám og verður nú að viðurkennast að er líka atvinnugrein sem er Íslandi ofboðslega mikilvæg. Ferðaþjónustan er orðin ein af stóru stoðunum og við höfum átt mjög mikið undir fluginu á Íslandi, ekki bara vegna þess að við erum jú lítil eyja úti í Norður-Atlantshafi heldur höfum við líka byggt upp ofboðslega mikla velmegun í ferðaþjónustunni og í flugiðnaðinum í tengslum við staðsetningu okkar.
Virðulegur forseti. Að því sögðu hvet ég hv. allsherjar- og menntamálanefnd til að fara vel yfir þetta en einnig hvet ég hæstv. ráðherra til að koma hér fram með frekari breytingar í anda þeirra atriða sem nefnd voru í skýrslunni og ég vona að verið sé að vinna að í ráðuneytinu, því að það er kallað eftir því að við náum betur utan um Menntasjóðinn, að við náum betur utan um námslánin og mikilvægi þeirra því að við eigum ofboðslega mikið undir því að hér sé vel menntaður mannauður og svo vitum við að þetta er auðvitað líka mikið jöfnunartækifæri, að fólk geti sótt það nám sem það kýs.