156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[19:03]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Mér þykir leitt að valda hv. þingmanni vonbrigðum að hafa ekki á einum og hálfum eða tveim mánuðum getað galdrað fram heildarendurskoðun á lögum sem síðustu ríkisstjórn tókst ekki að koma fram með. Þau komu vissulega með ágætisúrbætur og jú, við höfum alveg notað greiningarnar og samtölin. En þetta er meiri vinna en svo. Ég minni á að ástæðan fyrir því að þessar fimm eða sex aðgerðir koma fram núna er vegna þess að þegar lögin voru sett á sínum tíma við aðstæður sem voru fordæmalausar, 1% stýrivexti, þá var eins og menn hefðu talið að það yrði veruleikinn um aldur og ævi. Nú er svo komið að endurgreiðsla á 10 millj. kr. námsláni í nýja kerfinu með engum styrk er 27 milljónir, í nýja kerfinu með styrk 19 milljónir, en ef fólk hefði verið í gamla kerfinu væri það 17.

Ég held að hugmyndin á bak við það að fara yfir í blöndu af styrkjum og lánum hafi verið góð og við eigum að vinna með það áfram. En við þurfum auðvitað að stilla það af miðað við það efnahagskerfi sem við trúum að verði hér til frambúðar, ekki gefa fólki óraunhæfar væntingar.

Ég er alveg sammála hv. þingmanni að við eigum að hvetja og við erum að hvetja og við munum örva til að fólk sæki í þessar svokölluðu, ekki STEM-fögin heldur STEAM-fögin sem eru afar mikilvæg. En við erum auðvitað á öllum tímum í rauninni að reyna að stilla þessa hluti af.

Ég er ekki með neina beinharða spurningu til hv. þingmanns en ég spyr hana: Gæti verið þegar síðasta ríkisstjórn samþykkti lögin, eða þarsíðasta réttara sagt, að fólk hafi haft svolítið óraunhæfar væntingar um það hvert vaxtastigið í landinu yrði næstu 10, 15, 20 árin?