156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[19:05]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið. Ég hugsaði: Vá, hann er bara reiður hérna, eins og hann þyrfti að verjast mikið. Ég skil alveg að hæstv. ráðherra hafi ekki getað komið með heildarendurskoðun á sjóðnum á nokkrum dögum en það sem ég var kannski fyrst og fremst að benda á var hvort það væri skynsamlegt að taka alltaf lítil skref í einu eða hreinlega fara í heildarendurskoðunina og koma þá með það síðar.

Eins og ég sagði í ræðu minni áðan studdi ég ríkisstjórnina hérna 2020 sem kom með þessa heildarendurskoðun sem þáverandi hæstv. ráðherra, Lilja Alfreðsdóttir, leiddi og taldi sig vera hér með mjög góðar breytingar. Ég reyndar man ekki hvort hv. þingmaður hafi stutt þær breytingar. Í mínum huga var um það töluverð sátt hér í þingsalnum þegar farið var í þessa breytingu en ég kannski — nú hristir hæstv. ráðherra hausinn þannig að kannski er það rangt hjá mér. Ég man ekki eftir að það hafi verið miklar mótbárur gegn þeirri heildarendurskoðun sem var gerð 2020. Ég hélt að það hefði verið um það nokkuð breiður stuðningur að fara einmitt í þetta svolítið blandaða kerfi.

Hæstv. ráðherra kemur inn á vaxtastigið sem þá var og það er vissulega rétt að það er óeðlilegt að nemar sem taka lán á þessum lágu vöxtum og svo breytist vaxtastigið svona séu svo fastir inni í sínu og aðrir þurfi að taka hærri lán. Ég hef líka haft miklar áhyggjur af í rauninni efnahag Menntasjóðsins. Það voru gerðar vissulega breytingar á því á síðasta kjörtímabili og ég er nú ekki alveg búin að átta mig á þeim breytingum sem eiga sér stað hér hvað þann lið varðar, en það er vissulega vangavelta sem við þurfum að taka. Ég hef reyndar líka velt því fyrir mér, hæstv. ráðherra, hvort á sama tíma og ríkið sé með, hvað eigum við að segja, veðið eða andlag þess, ábyrgist það, að þjónustan mætti að einhverju leyti einkavæðast (Forseti hringir.) hvað þetta varðar. Ég veit ekki hvort það hefur verið komið inn á það í andsvörum áður en það væri áhugavert að heyra frá hæstv. ráðherra hvað hann segir um það.