156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[19:08]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Mér þykir nú leiðinlegt ef ég hef virst reiður, það var ég ekki. En ég var auðvitað dálítið hissa á því að hv. þingmaður sagði vissulega í fyrri ræðunni að hún saknaði þess að ég hefði ekki komið með heildarendurskoðun. En þannig að hv. þingmaður viti það nú, ef hún vissi það ekki áður, þá lágu engin slík frumvarpsdrög inni í ráðuneytinu. Það þurfti auðvitað bara að byrja að vinna úr þessum greiningum og ástæðan fyrir því að við réðumst í þessar núna og tókum þessi fáu skref þó að við boðum heildarendurskoðun næst er að fólk er að borga af þessum námslánum eins og það væri íbúðalán nánast. Fólk er að borga af tveimur námslánum og það þurfti að gera þetta vegna þess að þetta er ungt fólk á leiðinni út í lífið, að stofna fjölskyldur, og þetta er ekki byrjunin. Þetta á ekki að vera fyrsti veruleikinn sem það fær í andlitið eftir að hafa fjórum eða fimm árum fyrr álitið sig vera að taka lán hjá einhverju sem heitir í lögum félagslegur jöfnunarsjóður. Skýrslan sem síðasti hæstv. ráðherra lét gera sýndi það svart á hvítu að hann var svo sannarlega ekki félagslegur jöfnunarsjóður. Þannig að ég er svo sem að vinna í framhaldi af því, það er rétt. En ég gat ekki komið með heildarendurskoðun á lögunum núna. Ég held að það hefði bara verið óráð. Ég tel að það hafi ekki endilega verið rangt að skoða þetta samspil milli lána og styrkja en að miða við 1%, ástæðan fyrir því að ég hristi hausinn var að já, ég fór og varaði við því í ræðu að það yrðu ekki vextir um aldur og ævi á Íslandi og ég held að enginn hefði trúað því.

Varðandi spurninguna um utanumhaldið þá þarf jú að laga utanumhald um sjóðinn, en ég hef engan áhuga á að markaðsvæða félagslegan jöfnunarsjóð.