Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Já, ég þakka hæstv. ráðherra aftur andsvarið og aftur er bara punkturinn sem ég var að koma með: Er betra að við tökum svona lítið skref? En mér heyrist ráðherra hér boða svo heildarendurskoðun þannig að við munum þá fá það frá honum væntanlega á næsta eða þarnæsta þingi. Ég veit að það lágu fyrir mjög miklar greiningar. Það var búið að vinna mikla vinnu inni í ráðuneytinu. Skýrslan var auðvitað eitt en í kjölfarið voru svo unnar ýmsar greiningar á mismunandi leiðum hvað þetta varðar.
Ég kom líka inn á umsýslu sjóðsins og hvort ríkið gæti verið bakhjarl sjóðsins en við gætum látið einkaaðilunum eftir umsýsluna. Ég veit ekki alveg hvernig ég átti að túlka orð hæstv. ráðherra hvað það varðar en það er alla vega einn liður sem ég hefði gjarnan viljað sjá. Jú, vissulega segir að þetta sé félagslegur jöfnunarsjóður, námslánin. Alveg eins og ég sagði og ég er bara hreinskilin með það og við Sjálfstæðismenn höfum margoft ályktað um það að við erum mjög hrifin af þessu afsláttarfyrirkomulagi, þ.e. styrkjafyrirkomulagi, og að það standi allir við sama borð hvað það varðar. Það eru vissulega tækifæri hér til endurbóta og ég bara held áfram að hvetja hæstv. ráðherra og vona að hann reiðist mér ekkert fyrir það. (Gripið fram í.) Ég hvet hann bara áfram til að fara í þá vinnu að koma með heildarendurskoðunina einmitt svo að hér geti átt sér stað málefnaleg og djúp umræða um það hvernig við viljum sjá Menntasjóðinn þróast til lengri tíma.