Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna, námsstyrki og endurgreiðslur. Ég vil byrja á að segja að ég virði það við hæstv. ráðherra að hann komi með þessa breytingu hér fljótt inn til að bregðast við vissum aðstæðum vegna breyttra vaxta og fleira sem hefur komið í ljós við endurskoðun á löggjöfinni eins og gert var ráð fyrir. Það var sett strax í upphafi inn að það þyrfti að endurskoða þetta að þremur árum liðnum til að sjá hvernig þetta myndi þróast. Jú, námslánakerfið eða stuðningur hins opinbera við nemendur til að stunda nám er vissulega fyrir nemendur til að þeir fái nám en að sjálfsögðu er þetta líka stuðningur við samfélagið og atvinnulífið um að út úr menntakerfinu okkar komi fólk í störfin og sinni verðmætasköpun og rekstri samfélagsins.
Það var búið að fara í þessa endurskoðun og búið að vinna mikið af gögnum og hér eru áskoranir sem þarf að leysa og það er vel að það sé komið hingað inn svo fljótt í frumvarpi og ekki ætla ég að gera athugasemdir við það. En ég er kannski á sama stað og hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir að mörgu leyti og tel þetta gott tækifæri til að við ræðum þetta aðeins, upp á næstu skref hæstv. ráðherra, að þingheimur opni sig aðeins um það hvernig við viljum sjá þetta kerfi þróast. Það væri kannski gaman að heyra það frá hæstv. ráðherra hvernig hann sér næstu skref, hvort það sé að bæta við þetta tiltölulega nýja kerfi og finna leiðir til að gera það betra til að ná þeim markmiðum sem því er ætlað að ná og auðvitað fjalla lögin og reglur Menntasjóðsins um það í dag hvernig við nýtum styrki frá hinu opinbera til nemenda. Ætlum við að gera það með þeirri löggjöf og því fyrirkomulagi sem er í dag með einhverjum breytingum, áherslubreytingum, og er þá verið að gera það með þessari heildarendurskoðun? Eða ætlum við bara að fara einhverja allt aðra leið? Og er einhver önnur leið sem er betur til þess fallin að ná markmiðunum og við teljum sanngjarnari og skynsamlegri?
Ég verð bara að viðurkenna að ég fæ alltaf svolítinn leiða í hjarta þegar ég hugsa um Menntasjóðinn, yfir því að við náðum ekki að klára þær breytingar sem ríkisstjórnin 2013–2016 var komin fram með. Undir þinglok var þetta orðið tilbúið, heilt námslánakerfi, en í þinglokasamningum rétt fyrir kosningar þá var bara ekki um það að ræða hjá þáverandi stjórnarandstöðu að það kerfi færi í gegn. Það var bara ekki hægt að ljúka þinginu ef það kerfi ætti að fara í gegn.
Það sem er kannski ekki aðalatriðið í dag heldur eitthvað sem ég myndi vilja sjá okkur ræða er hvort við gætum nálgast svipaða útfærslu og við vorum komin með þá. Þá var verið að nýta styrkinn frá hinu opinbera þannig að allir námsmenn, óháð efnahag og slíku, hefðu sömu tækifæri til að fara í nám án skuldsetningar eða fengju að njóta styrksins jafnt, svolítið óháð námi og óháð efnahag og öllu, að þá fengju allir að vissum skilyrðum uppfylltum námsstyrk og færi upphæð hans og útdeiling eftir því hversu fljótt eftir framhaldsskóla þú færir inn í háskólakerfið og hversu hratt þú færir í gegnum kerfið, og svo þurfum við náttúrlega að geta styrkt iðnnám og fleira, það þarf að vera svolítill fjölbreytileiki í náminu, og svo þegar búið væri að taka tillit til annarra breyta, þegar þú fengir námsstyrkinn og ef þú ættir rétt á húsaleigubótum eða einhverjum öðrum greiðslum frá hinu opinbera, stuðningsgreiðslum, þá yrði það tekið, og það sem væri þar fyrir ofan og vantaði upp á að þú næðir einhverri framfærslu sem þú þyrftir eftir einhverjum formúlum gætirðu fengið lánað á tiltölulega hagkvæmum kjörum en ekki jafn hagkvæmum kjörum og þá voru, hinum frægu 1% vöxtum.
Þetta var þá hvati fyrir nemendur til að fara í gegnum námið sitt og tækifæri til að fara í gegnum námið sitt án þess að skuldsetja sig og draga úr skuldsetningunni. Það er hagur samfélagsins að fólk komi sem fyrst út úr menntakerfinu og fari að nýta þekkinguna sem við hjálpum því að fjárfesta í fyrir verðmætasköpun og rekstur samfélagsins. Vissulega á að vera frelsi til þess að allir sæki sér nám óháð aldri en við hljótum samt að forgangsraða stuðningi hins opinbera fyrir fólk eftir því sem það er yngra og því lengur sem við fáum þá að njóta krafta þess og árangurs. Það er svolítið þetta sem mig langaði að koma hér á framfæri, að jú, við tökum þessu máli hér fagnandi, reynum að gera bætur á kerfinu. En hvert viljum við svo fá þetta til að þróast? Ég myndi alla vega vilja skoða þetta styrkjakerfi og hvort ekki væri skynsamlegra að gefa nemendum tækifæri á að komast helst án skuldsetningar í gegnum háskólanámið, óháð efnahag. Þegar um ungt fólk er að ræða á ekki að þurfa að skipta öllu máli hvaða tekjur þau hafa yfir sumartímann og hvernig þau ráðstafa sínum frítíma og annað slíkt. Þetta frítekjumark getur verið ansi ósanngjarnt gagnvart nemendum og við eigum að reyna að útrýma því, myndi ég halda.
Svo langar mig bara að koma aðeins inn á það sem ég nefndi hér áðan, að við þurfum að hafa þetta svolítið sveigjanlegt kerfi. Það þarf einhvern veginn að tryggja að námslánakerfið stýri ekki fólki í eitthvert ákveðið nám heldur þurfum við að tryggja að námið þróist svolítið með samfélaginu og nú hef ég Kvikmyndaskólann svolítið í huga. Hann var lánshæfur og svo bara við þá breytingu að það var komið listnám í kvikmyndagerð skör ofar þá féll námslánaheimildin til Kvikmyndaskólans út þótt þetta væri svolítið sitthvort námið og sitthvorir nemendurnir. Það eru ýmsar svona reglur sem við þurfum að hafa í huga.
Svo verðum við líka að átta okkur á með iðnnámið að það þarf að vera mjög aðgengilegt og svo er það hver skilin eru milli iðnnáms og háskólanáms og hvernig samfélagið þróast. Þetta á líka við almennt, ekki bara þegar við erum að tala um námslánin eða námsstyrki, þetta er bara vandamál sem við verðum að takast á við. Nú sér maður á framhaldsskólastiginu, hvort sem það eru einkareknir skólar eða sjálfstætt starfandi skólar eða opinberlega reknir skólar, fjölbrautaskólar, eins og mér heyrðist hv. þm. Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, fjalla um hér í dag, um fjallamennskunámið í Framhaldsskólanum í Austur-Skaftafellssýslu, þ.e. að ef skólar reyna nýsköpun til að mæta nýjum atvinnugreinum þá eru þeir bara allt í einu komnir á hausinn, og svo eins og gerst hefur hjá Kvikmyndaskólanum einhvern veginn, að nemendur eru komnir í óvissu og eitthvað svona. Við þurfum einhvern veginn að sameinast um að finna lausnir í þessum málum af því að þetta er mikilvægt, ekki bara fyrir nemendurna, að þeir geti valið sér nám eftir áhuga og hæfileikum og eftir því hvaða tækifæri þau sjá í framtíð sinni og hvernig þau byggja upp sína starfsævi; þetta er líka menntun sem atvinnulífið þarf á að halda til að byggja upp ferðaþjónustu, og kvikmyndaiðnaðurinn hefur stækkað gríðarlega hér, bara svo við tökum þessi tvö dæmi. Hann hefur byggst upp gríðarlega hér á landi og sérstaklega þjónustan við hann.
Við þurfum að hafa þetta í huga, hvernig við gerum þetta og ég vona að það verði þá bara fjölbreyttar umræður um þetta í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Við fáum vonandi einhverjar línur og upplýsingar um það hér við 2. umræðu um þetta frumvarp. Það væri líka svolítið gaman að heyra frá hæstv. ráðherra hvað hann sér fyrir sér í þessu. Erum við að fara að þróa núverandi löggjöf sem er ekkert svo gömul áfram eða erum við að fara meira út í svona styrkjakerfi eða einhverja aðra leið? Og hvað hæstv. ráðherra finnst líka um þetta svokallaða frítekjumark, hvort nemendur eigi ekki bara að hafa jöfn tækifæri og sitja við sama borð.
Ég vona að málið fái góða umfjöllun í allsherjar- og menntamálanefnd og óska henni góðs gengis við sín störf.