Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Kvikmyndaskóli Íslands starfaði á fjórða hæfnissviði framhaldsskóla, er undir mennta- og barnamálaráðuneytinu og var réttilega með lánshæft nám á sínum tíma en ég held að þau hafi misst þau réttindi einhvern tímann fyrir áramót. Varðandi það hvað við eigum að gera næst: Hér erum við auðvitað bara að leggja fram frumvarp til að bregðast við þeim ofurvöxtum sem hafa verið í samfélaginu og þeim aðstæðum að það eru til nemendur sem eru að borga af tveimur lánum í einu. Þetta eru nú svona stærstu breytingarnar. Við boðum hins vegar heildarendurskoðun. Það þýðir ekki að við séum að boða kollsteypu.
Ég hef út af fyrir sig alltaf sagt að mér hafi þótt ákveðin skynsemi í því að horfa til Norðurlandanna og horfa á einhvern samslátt styrkja og lána. En ég held hins vegar að á sínum tíma hafi menn einhvern veginn verið of bjartsýnir að halda að vextir yrðu jafn lágir og þeir voru þegar lögin voru samþykkt og við þurfum að laga það. Ég tel almennt að námslánakerfi eigi að byggja á jafnvægi, gegnsæi og fyrirsjáanleika en það á alls ekkert endilega að breyta því að óþörfu.
Mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann, af því að hann studdi þetta mál á sínum tíma: Taldi hann, eins og þáverandi hæstv. fjármálaráðherra, að við værum komin inn í langvarandi lágvaxtaskeið eða var þetta of mikil bjartsýni? Hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson hélt fyrirtaksræðu hér áðan þar sem hann benti á að fólki væri oft mismunað eftir búsetu. Hv. þm. Vilhjálmur Árnason talaði um að það ættu allir að vera jafnir óháð tekjum en það styrkjakerfi sem var boðað á sínum tíma umbunaði nú helst þeim sem gátu búið hér á höfuðborgarsvæðinu og heima hjá foreldrum sínum.