Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Það er rétt sem hæstv. ráðherra segir um Kvikmyndaskólann og það var einmitt það sem ég kom inn á, að við þurfum að passa það að við höldum inni fjölbreytileika námsins. Kvikmyndaskólinn sem starfar á fjórða hæfnisstigi og nemendur skólans misstu lánshæfisrétt sinn af því að það var komið nám á hærra hæfnisstigi við hliðina. (Mennrh.: Það er bara rangt.) — Þannig lærði ég þetta mál, að það hafi verið ástæðan fyrir því, þ.e. að forsenda til að vera á námsláni væri að vera á hæsta hæfnisstigi í þessari námsgrein. Ég vildi bara tala um það hér við hæstv. ráðherra að það væri mikilvægt að hafa sveigjanleika þarna og ég vona að við getum sammælst um það af því að mikilvægi námsins breyttist ekkert þó að komið væri nýtt nám.
Var ég svona bjartsýnn? Ég get alveg viðurkennt að á þessum tímapunkti var ég töluvert bjartsýnn eftir tíu ára góðæri, vil ég leyfa mér að segja, lágt vaxtastig, lágt verðbólgustig og annað en bjóst alveg við, með vexti og annað, að það gæti aðeins harðnað á dalnum. En að við fengjum tvenn stríð, Covid-heimsfaraldur og jarðhræringar á sama tíma og að vaxtastigið og verðbólgan færi svona hratt og svona hátt upp — það var kannski ekki það sem maður átti von á á þeim tíma. En ef við hefðum samþykkt námslánakerfið þarna á þinginu 2015-2016 þá hefði það kannski ekki komið að sök ef sem flestir hefðu getað farið í gegnum nám án lánveitinga.