156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[19:28]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Það er bara beinlínis rangt að nám sem boðið er upp á á háskólastigi komi í veg fyrir að nám á fjórða hæfnisstigi framhaldsskóla geti verið lánshæft; það væri þá á vakt ríkisstjórnar hv. þingmanns sem það hefði gerst. En það er ekki þannig. Það er bara alls ekki þannig. Það eru aðrar orsakir sem hann verður að spyrja út í og við skulum bara spyrja að leikslokum þarna.

Það er gott að hv. þingmaður var bjartsýnn á framtíðarhorfur í vaxtamálum á Íslandi en hann hlýtur að hafa áttað sig á því að þegar land lokast, þegar fólki er bannað að fara út, þegar þjónustuaðilar mega ekki hafa opið og það er jafnvel fjarlægðarregla á milli einstaklinga myndast aðstæður þar sem vextir sem Seðlabankinn setur eru ekki eðlilegt ástand sem mun vara um aldur og ævi. Ég ítreka bara það sem ég sagði við hv. þingmann hér áðan að mér fannst góður hugur fylgja þeim breytingum sem gerðar voru árið 2019, minnir mig, og ég held að ég hafi stutt þetta mál. Ég hélt þá ræðu þar sem ég varaði við að þessir vextir yrðu ekki viðvarandi. En það skiptir ekki öllu máli núna. Við eigum fullt af gögnum. Það var búið að vinna talsverða og góða vinnu í ráðuneytinu áður en ég kom þarna inn. Við munum auðvitað nota þau gögn og við munum byggja á þeim hugmyndum sem settar voru fram á sínum tíma. Svo verðum við bara að stilla þetta af þannig að við fáum námslánakerfi sem er raunverulega félagslegur jöfnunarsjóður og aðstoðar fólk óháð tekjum en líka búsetu.