156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[19:31]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Það er heiður að fá að eiga orðastað við hann um þetta mikilvæga mál hér í þinginu. Ég vil bara byrja á að segja að hver sem hin raunverulega ástæða var fyrir því að nemendur Kvikmyndaskóla Íslands fengu ekki námslán þá er mikilvægt að fyrirsjáanleiki og stöðugleiki nemendanna sé tryggður og að við höfum hér fjölbreytt nám og það þurfi ekki allt að vera á sama hæfnisstigi. Ég tel það mikilvægt.

Ég hlakka til að sjá hver þróun Menntasjóðs og námsstyrkja verður og minni á, og bið hæstv. ráðherra að kanna það, að um áramót á þinginu 2015–2016 vorum við komin með vissa útfærslu á styrkjakerfi sem átti að vinna með lánum ef það vantaði upp á framfærsluna hjá nemendunum — það er það kerfi sem mér hefur litist langbest á og ég vona að þetta þróist í þá átt. Þá held ég að við getum einmitt náð að þjónusta nemendurna óháð efnahag og óháð búsetu.