Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. háskólaráðherra, Loga Einarssyni, fyrir sitt innlegg hér í dag. Það hefur verið gaman að hlusta á hæstv. ráðherra með sína heimspeki og sína þekkingu sem er til eftirbreytni. En að fjárfesta í háskólanámi er dýrt. Þó að á Íslandi sé í raun kannski ódýrt að mennta sig þá heggur þetta í pyngju hins venjulega háskólamanns. Þess vegna skiptir máli að það nám sem menn fara í sé gott og skili einhverjum ávinningi. Ég vil vekja athygli hæstv. ráðherra á því, og ég hef ákveðna sérþekkingu á menntamálum, að ég tel að við þyrftum að skoða háskólanám almennt. Ég held að í einhverjum greinum, alla vega í kennaranámi, séum við búin að teygja það í svolítið langan tíma. Það tekur fimm ár að mennta sig til kennarastarfa. Því fylgir auðvitað kostnaður þegar fólk er í námi í fimm ár. Fimmta árið er reyndar orðið, ef menn vilja, launað starfsár þannig að það er bót í máli. En ég held að það væri gæfuspor fyrir kennaramenntun í landinu og íslensk börn að kennaranám yrði þrjú ár en ekki fimm.
Um það bil 20% kennaranema finnst námið ekki skila sér vel undirbúnum til kennslu. Það er athyglisvert að fimmtungi nemenda finnist fimm ár ekki hafa skilað þeim þeim ávinningi að þeir séu reiðubúnir að fara að kenna í leik- og grunnskóla. Við höfum séð að árangur í grunnskólanum hefur ekki batnað síðan námið var lengt í fimm ár heldur hefur hann stöðugt versnað. Ég held að það væri gott fyrir landið í heild að við myndum endurskoða kennaranám að ákveðnu leyti; ég vil kannski ekki tala um annað háskólanám en ég held að það væri alveg ráð að gera það fyrir þá sem hafa þekkingu og vit til. Um aldamótin var aðsóknin í kennaranám þannig að einn fjórði eða einn þriðji komst inn. Þá var kennaranámið þrjú ár. Kennaraháskólinn sem þá hét gat þá valið úr stórum hópi umsækjenda, 300–400 umsækjenda, kannski 100 sem komast inn, og það gefur augaleið að hópurinn sem kemur inn í það nám, þegar þú getur valið úr svona mörgum, er sterkari en hópurinn sem kemur inn ef þú getur ekki valið úr neinum. Ég get ekki fullyrt að tímalengd námsins sé það sem valdi því að fleiri hafi sótt um um aldamótin en það er, held ég, alveg örugglega breyta í því.
Kennaranámið er ofboðslega praktískt og gott nám. Þeir sem fara í slíkt nám geta unnið um allt land. Það eru grunnskólar nánast úti um allt og kennarar geta líka unnið erlendis. Þetta er svona nám sem ég held að við ættum að gera að svona prufunámi í því að fara aftur í það sem var, þrjú ár sem er svona praktískt og gott nám. Núna höfum við þurft að beita fortölum og auglýsingaherferðum til að fá fólk inn í námið. Ég held að það sem myndi gerast við þessa breytingu, ef við myndum stytta námið, sé að fleiri myndu sækja um og gæði kennaranna myndu þá aukast. Fleiri börn fengju kennaramenntaða kennara þar sem við gætum útskrifað fleiri kennara. Við það að hafa öflugri kennara myndi námsárangur batna. Námslán, eins og það sem um ræðir í þessu frumvarpi, myndu lækka af því að fólk er þrjú ár í námi en ekki fimm. Kostnaður við hvern kennara myndi lækka. Við erum þá ekki fimm ár að mennta kennara í háskóla heldur þrjú. Við myndum hafa kennaranámið markvissara og árangursríkara með því að endurskoða kennsluskrána og því meiri árangri sem starfsstéttir ná því meiri virðing er borin fyrir störfum þeirra. Með aukinni virðingu myndu laun hækka. Þetta fimm ára kennaranám er tilraun sem hefur færri kosti en galla. Ég held að við ættum að horfast í augu við það og leyfa æsku landsins að njóta góðra kennara.
Virðulegi forseti. Til að fjölga þeim sem fara í gegnum háskólanám á réttum tíma, þannig að þeir endi þá með námslán sem þeir geta mögulega greitt af, þarf grunnurinn að vera sterkur. Það er ekki mannlegt að sífellt stærri hluti nemenda sem útskrifast úr grunnskólum sé ekki með grunnfærni í lesskilningi, eða 40% nemenda eftir tíu ára skyldunám. Það að við séum ekki á nógu góðum stað í grunnskólunum skilar sér í meira brottfalli í framhaldsskólunum og kröfurnar minnka mögulega þar, og þá líka í háskólunum, meðvitað eða ómeðvitað. Þess vegna skiptir það verulega miklu máli að við séum með góða kennara í hverri stöðu og að innihald námsins, hvort sem það er í leik-, grunn-, framhalds- eða háskóla, sé þess eðlis að það sé gott nám sem byggist á traustum þekkingargrunni. Og þetta segi ég ekki bara út í loftið vegna þess að ég hef sjálfur reynslu af þessu: Þekking í námi skiptir öllu máli. Þekking er undirstaða framfara. Ég kom að því hér fyrr í dag að þekking er eins og tól eða tæki, það er hægt að nýta hana til illra eða góðra verka. En oftast er það þannig að þekkingin leiðir af sér eitthvað gott.
En ég held að hæstv. háskólaráðherra mætti íhuga það að íslenska skólakerfið hefur smátt og smátt ýtt þessu hugtaki út, hugtakinu þekking, og sett annað hugtak í staðinn sem er hæfni; það er mun óræðara hugtak en í grunninn er skilgreining á hæfni sú að þá er maður að beita þeirri þekkingu sem maður hefur, sem er auðvitað nauðsynlegt. Maður verður að geta beitt þekkingunni, annars er hún ekki til neins. En það þarf að byggja þessa þekkingu upp markvisst. Hér hafa ræðumenn á undan mér talað um alls konar nám, skaðanám og fleira; hvort það eigi við hér er ég ekki alveg viss um. En það þarf að byggja þessa þekkingu upp markvisst og þá meina ég að maður læri þannig að maður myndi nýtt tauganet í heilanum. Í því felst lærdómur. Þú lærir ekkert ef þú nærð ekki að mynda þetta nýja tauganet. Þá er þekkingin komin í langtímaminni okkar og við getum nýtt okkur hana. Við erum með langtímaminni og skammtímaminni. Í langtímaminni er í raun botnlaus hít, við getum endalaust dælt inn í langtímaminnið. En skammtímaminnið — það einkennir fólk sem er með gott skammtímaminni að það er fljótt í tilsvörum. Það nær að meðtaka upplýsingar, fletta í gegnum allt langtímaminnið og orða hugsanir sínar, móta þær, tálga og koma út með eitthvað sem tengist málefninu. Við getum bara verið með þrjú til fjögur atriði í gangi í einu í skammtímaminninu. Þess vegna skiptir miklu máli að maður þekki þessa taugafræði vegna þess að það er oft talað um, og þetta á líka við um háskóla, einhvern páfagaukalærdóm, að maður eigi ekki að vita neitt, ekki að kunna neitt utanbókar. Ég get hryggt fólk með því að það er einmitt málið, maður þarf að þekkja hlutina, maður þarf að vita, kunna utanbókar; þú gúglar þér ekki til gagns á sekúndubroti. Það fólk sem er með mestu þekkinguna, mesta orðaforðann, flest hugtökin á hreinu, getur tjáð sig í ræðu og riti og er félagslega sterkt er líklegast til að ná árangri í lífinu. Og til að geta skilið heildarmynd mála, til að skilja ritað mál og talað og til þess að geta lesið texta þarf fólk að skilja 97% orðanna í textanum til að meðtaka innihaldið. Því meiri orðaforða og því fleiri hugtök sem við þekkjum þeim mun auðveldara eigum við með að bæta við okkur nýrri þekkingu. Þess vegna finnst mér það hættulegt, eins og tröllríður oft umræðunni í menntasamfélaginu, að við þurfum ekki að kunna neitt, að þetta sé allt í vasanum hjá okkur, að við getum gúglað þetta. Það er í raun falskt að segja þetta við fólk. Við þurfum að kunna, við þurfum að vita og því meira sem við vitum þeim mun auðveldara er fyrir okkur að bæta við okkur nýrri þekkingu og búa til nýja. Þetta eru Matteusar-áhrifin sem eru bara þekkt í taugasálfræði og þetta ætti í raun að vera grunnpæling í öllu námi og sérstaklega í grunnskóla.
Til að tryggja það að nemendur, hvort sem er á leik-, grunn-, framhalds- eða háskólastigi, séu með þessa þekkingu þurfum við að vera með gott námsefni. Ef við hugsum um háskólana og hugsum um lánin — við þurfum að fara í nám sem getur verið þrjú, fimm, sjö, tíu ár; þetta er gríðarlega stór fjárfesting og ef við erum ekki með sterkan grunn til að fara inn í slíka fjárfestingu þá er voðinn vís. Eins og Isaac Newton sagði snýst lærdómurinn ekki um að þurfa að nema allt sjálfur, við getum lært af þeim sem á undan eru farnir. Við getum notað reynslu þeirra. Við getum staðið á öxlum þeirra, þekkingarlegra risa. Ég vil bara minna á það aftur að þessi svokallaði páfagaukalærdómur, sem er svona gildishlaðið neikvætt orð — og þegar ég segi gildishlaðið þá minnir það mig á umræðuna hér áður við hæstv. ráðherra Loga Einarsson en við áttum skemmtilegt samtal hér um daginn. En páfagaukalærdómur; ég held að við getum þó verið sammála um að það er neikvætt gildishlaðið orð. Þess vegna vil ég síður nota það. En ég vil bara minna á að til þess að vera með gagnrýna hugsun þarf þekkingu. Ef bóndi stæði t.d fyrir framan mig þá ætti hann auðvelt með að gagnrýna það ef það ætti að hækka áburðarverð, það sem hann er að bera á túnin. Ég ætti erfiðara með það þar sem ég er ekki bóndi. Þekking hans á því sviði sem hann hefur atvinnu við gerir hann færari til að gagnrýna, hann getur verið með gagnrýna hugsun þar. Þekking er undirstaða gagnrýninnar hugsunar. Það sama á við um sköpun. Það er oft talað um að sköpun eigi að taka yfir allt skólastarf. Sköpun er þannig — svo að ég taki hv. þm. Þórarin Inga Pétursson aftur fyrir þá er hann líklegri til að skapa eitthvað í sínum störfum sem verður honum að gagni því að hann veit hver vandinn er, hann hefur þekkingu á sínu nærumhverfi þannig að hann er líklegur til að skapa. Þarna erum við komin með tvö hugtök sem oft eru tengd við svokallaða 21. aldar hæfni, sköpun og gagnrýna hugsun. Báðir þessir 21. aldar hæfniþættir byggja á þekkingu. Þess vegna er mér umhugað um það að dýrt nám sem fólk fer í í háskóla sé þannig úr garði gert að það sé vel uppbyggt, byggist á þekkingu sem nýtist víðar en bara á því sviði sem verið er að læra um og hjálpi háskólaborgurum í fleiri hlutum en einungis þeim sem þeir eru að læra um á sínu sviði.
Ég vil bara þakka hæstv. ráðherra aftur fyrir að vera með okkur hér í þingsal og fylgjast með og læt máli mínu lokið.