Menntasjóður námsmanna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir hans framsögu um þetta mál. Það er áhugavert að fá smáinnsýn í hugskot hans því að hann hefur gríðarlega reynslu af menntamálum, hafandi verið skólastjóri og kennari, eflaust í áratugi gef ég mér. Mig langaði svona aðeins að velta því upp við hann, varðandi tækifæri til menntunar. Nú hefur hv. þingmaður verið skólastjóri hér á höfuðborgarsvæðinu og ef við horfum bara yfir landið allt og tækifærin í þessum byggðarlögum sem eru misstór og misburðug til að takast á við þær áskoranir sem samfélagið býður upp á í dag — áskoranir í hegðun nemenda og líka bara fjölbreytni í hópunum. Samfélagið er orðið fjölbreyttara, nemendur af erlendum uppruna og annað. Það skiptir máli að hafa einmitt kennara, fagmenntaða kennara, á gólfinu með nemendunum okkar og með börnunum okkar. Hvernig sér hv. þingmaður það fyrir sér að við getum eflt enn frekar tækifæri þessara barna. Við vitum að því ofar sem kemur í grunnskóla, ef við horfum t.d. bara á unglingadeildina, 8., 9. og 10. bekk, þá er sérhæfingin orðin meiri í hinum ýmsu fögum. Hér á höfuðborgarsvæðinu og í stærri byggðarlögum höfum við einmitt menntaða kennara til að sinna þessum fögum sem skortir aðeins í hinum dreifðari og minni byggðum um landið. Mig langar bara að heyra í hv. þingmanni: Hvaða tækifæri sér hann í þessu og hvernig getum við mælt þetta enn frekar?