156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[19:50]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir spurninguna. Ég er reyndur skólamaður en ekki reyndur alþingismaður en við í Sjálfstæðisflokknum vorum að berja saman þingsályktunartillögu þar sem tekið er á mjög mörgu í kringum þetta. Þetta er virkilega góð spurning og í raun kjarninn í því hvers vegna ég er hér inni á þingi; ég vil sem sagt að börn nái árangri í námi og að þeim líði vel. Hvernig getum við eflt slíkt? Ég held og er eiginlega viss um að það væri gríðarlega gott skref, og ég er ekkert að fara með einhver gamanmál hér í ræðupúlti Alþingis, að stytta kennaranámið úr fimm árum í þrjú. Ég held að við fengjum miklu fleiri nema inn í námið og eðli málsins samkvæmt — ef við hefðum úr stórum hópi að velja — væru það sterkari nemar. Við gætum verið með forgangsröðun þannig að þeir sem eiga heima úti á landi fái frekar inni en aðrir til að koma kennurum í dreifðari byggðir landsins. Það ætti að vera algjör regla að hvert einasta barn á landinu, hvar sem það býr, hefði aðgang að góðum kennurum. Góður kennari — ég held að allir geti flett upp í huga sér og komið niður á einhverja persónu sem hefur haft mikil áhrif á þeirra líf. Ef þú ert með þannig einstakling og ef þú ert þannig einstaklingur þá áttu auðvitað að fara í kennslu, ef þú getur haft góð áhrif á börn og ungmenni. En þetta er rosalegt jöfnunarmál, að börn sem eru ekki endilega með baklandið fullkomið, fjárhagslega eða félagslega, fái líka þessi tækifæri sem aðrir fá.