Menntasjóður námsmanna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Þetta er einmitt áhugaverð nálgun af því að það er ekkert svo langt síðan kennaranámið var lengt úr þremur árum í fimm og var það hugsað til að auka gæðin. Það er jafnvel hægt að velta því fyrir sér hvort hægt sé að lengja verknámið og að kennarar fái greitt fyrir, þó að það séu kannski ekki kennaralaun til að byrja með, á meðan þeir eru að öðlast reynslu. Annað tækifæri væri Skóli í skýjunum, eins og Ásgarður hefur t.d. verið að sinna og ég veit að þeir hafa verið að sinna þessum dreifðu byggðum í tengslum við unglingana. En talandi um þessar dreifðu byggðir og hvað hægt sé að gera: Við í Framsókn höfum talað fyrir því að vera með styrki til þeirra svæða og stuðning í formi niðurgreiðslna á námslánum eða einhvers konar skattaívilnanir. Ef við horfum á hinar dreifðu byggðir þar sem skortir einhverja sérfræðiþekkingu eins og t.d. kennaramenntun — sæi hv. þingmaður fyrir sér tækifæri í því að það væri svoleiðis virkt stuðningskerfi? Því fjær sem þú færir frá höfuðborginni — og það vantaði og skorti tilfinnanlega vissa þekkingu á landsbyggðinni — þá væru sérstakar ívilnanir í boði, annaðhvort í formi einhvers konar skattaívilnana eða hreinlega niðurgreiðslna á námslánum? Ég mun koma aðeins inn á þetta í máli mínu hér á eftir í tengslum við þetta mál því að þetta tengist alveg klárlega, hvort það væri eitthvað sem þyrfti að skoða við heildarendurskoðun á þessum lögum.