156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[19:54]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir sitt seinna andsvar. Ég held að það væri ekkert vitlaust þegar heildarendurskoðunin væri gerð — við erum með fleiri stéttir, það vantar lækna hingað og þangað og það vantar kennara — að það væri einhvers konar ívilnun varðandi styrki hvað námslán varðar. Þetta er jafnræðis- og jafnréttismál og ég er talsmaður þess að jöfn tækifæri séu út um allt. Það er ekki endilega fjarlægð frá borginni sem skiptir máli; það getur verið stutt í einhvers konar byggð þar sem enginn kennari er en svo lengra til Akureyrar, það er kannski þar sem skorturinn er. Við reynum þá með einhverjum hætti að vera með hvatastýringu til þeirra svæða þar sem vantar starfsmenn sem eru nauðsynlegir fyrir svæði, hvort sem það eru kennarar eða læknar, hjúkrunarfræðingar eða annað starfsfólk, oftast opinberir starfsmenn.

Síðan er það hitt sem mig langar svolítið að nefna og ég hefði kannski þurft aðra ræðu til, það er þetta rafnám, fjarnám. Ég held að það ætti að vera neyðarúrræði vegna þess að börn í grunnskóla, hvort sem þau eru sex ára eða 16 ára og allt þar á milli — það þarf að ná mannlegum tengslum við þau. Þau eiga að geta komið til manns þegar þau vilja, maður hlustar, tengist og myndar samfélag með þeim. Ég hef oft hugsað um það að frábærir kennarar væru að kenna í gegnum netið eða eitthvað slíkt en það er bara ekkert það sama og að vera með krökkum og ganga í gegnum lífið með þeim á þeirra skólagöngu.