156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[19:57]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna í þessu máli sem byggist einmitt á vinnu sem var á síðasta kjörtímabili, sem var umræða hér um skýrslu og er gert ráð fyrir því að metinn sé á þriggja ára fresti árangurinn varðandi þessar breytingar sem hafa verið gerðar á lögum um Menntasjóð námsmanna.

Við erum auðvitað að ræða hérna eitt mikilvægasta mál okkar sem tryggir jöfnuð og framtíðarsýn og möguleika fólks til að byggja sig upp í gegnum menntun. Ég vil ganga svo langt að segja að þetta sé eitt mesta og besta jöfnunartækið sem við höfum í landinu.

Það frumvarp sem hér er til umræðu felur í sér framfaraskref. Það segir í rauninni að það hafi ekki allt gengið eins og við vonuðum varðandi þessar breytingar sem voru gerðar á námslánakerfinu árið 2020. En þá er líka mikilvægt að við rýnum í reynsluna og bætum úr þar sem hægt er. Við vitum að stuðningur við námsfólk hefur dregist saman og stærri hópar námsmanna standa utan við það kerfi sem er einmitt ætlað að vera þeim til halds og trausts, þannig að ég fagna því að þessi vinna hafi átt sér stað og hæstv. ráðherra sjái tækifæri í því að leggja þetta mál fram og halda áfram með þessa vinnu og það sé einmitt verið að horfa á kerfið með gagnrýnum augum og viðleitni til að bæta úr, sem er afar mikilvægt.

Það eru mikilvægar umbætur í þessu frumvarpi, það er margt jákvætt. Við sjáum breytingu á námsstyrkjakerfinu sem gefur sveigjanleika með því að lánþegar geta fengið hluta styrksins eftir hverja önn í stað þess að bíða til námsloka. Það skapar auðvitað meira öryggi í náminu sjálfu og eykur líkurnar á að fólk fái þann stuðning sem því er ætlaður. Við sjáum einnig breytingar á vaxtaviðmiðum sem stuðla að meiri stöðugleika. Í stað þess að vextir sveiflist með hverri ákvörðun peningastefnunefndar eru þeir byggðir á þriggja ára meðaltali ávöxtunarkröfu ríkisskuldabréfa. Þetta er breyting sem dregur úr ófyrirséðri hækkun greiðslubyrði og skapar betra fjárhagslegt umhverfi fyrir námsmenn, myndi maður segja. En það er líka tímabært og rétt að lögfesta einmitt að ríkissjóður beri vaxtakostnað fram að námslokum. Það hefur reyndar alltaf verið gert en það er verið að hnykkja á því núna og gera það skýrara í lögunum.

Svo er fresturinn til að hefja endurgreiðslu lengdur úr 12 mánuðum í 18. Það myndi ég segja líka að væri bara viðurkenning á því að námslok marka ekkert endilega sjálfkrafa efnahagslegt öryggi. Það eru ekki allir sem komast strax í vinnu og þurfa tækifæri þannig að þetta er virkilega jákvætt skref sem ég fagna. En það eru líka vissulega spurningar sem vakna og ég held að það sé mjög mikilvægt einmitt að við vörpum þeim upp í umræðunni til að fá þá dýpri umræðu um þetta og vonandi eitthvert efni fyrir hæstv. ráðherra til að vinna áfram þegar hann fer í heildarendurskoðun á málinu. Þrátt fyrir að vissar umbætur hafi verið lagðar fram þá spyr maður sig kannski: Af hverju var ekki gengið lengra? Ég held að stutta svarið sé af því að það eigi að fara í heildarendurskoðun á málinu.

Mig langar samt að varpa aðeins upp nokkrum spurningum, eða alla vega vangaveltum. Við lifum á tímum þar sem menntun er ekkert endilega skilgreind nákvæmlega, á ekki eingöngu að tengjast við ungt fólk sem fer í beinu framhaldi í háskóla heldur erum við líka að horfa á hluta af símenntunarsamfélagi. Menntun er í raun orðin verkefni sem getur jafnvel náð yfir ansi stóran part af lífsferli okkar. Þrátt fyrir það er námslánakerfið núna enn mótað út frá hugmyndinni um hinn dæmigerða námsmann; námsmann sem fer í grunnskóla, fer í framhaldsskóla, beint eftir það í háskóla og útskrifast, verður fjárhagslega sjálfstæður og heldur áfram; þennan unga einstakling, fjárhagslega óháðan, barnlausan, án veikinda eða sérstakra aðstæðna sem fer hraðferð í gegnum námið og vinnumarkaðinn. En við verðum að átta okkur á því að raunveruleikinn er allur annar, það eru ekkert allir sem passa í þetta box.

Þá vil ég vekja athygli á því að námsstyrkir eru enn þá bundnir við það að fólk klári nám á tilteknum tíma. Það er skilyrði sem útilokar stóran hóp sem þarf lengri tíma, ekki af leti eða kæruleysi heldur bara vegna aðstæðna sem þeir hafa jafnvel ekki stjórn á sjálfir. Við vitum að foreldrar, sérstaklega einstæðir foreldrar, þurfa sveigjanleika. Fólk með fötlun þarf líka aðlögun. Svo eru það þeir sem læra á nýju tungumáli eins og við heyrðum hv. þm. Fidu Abu Libdeh koma inn á hérna áðan. Það þarf að aðlagast nýju samfélagi. Það þarf að byggja upp stuðningsnet og vinnuumhverfi frá grunni. Þetta er alveg áskorun fyrir einstaklinga sem eru að flytja í nýtt samfélag með ekkert stuðningsnet í kringum sig, þannig að námsmenn af erlendum uppruna standa í sérstaklega veikri stöðu gagnvart þessu tímaskilyrði, myndi ég segja. Margir þeirra ná ekki að ljúka námi innan tilskilins tíma einfaldlega vegna þess að þeir þurfa jafnvel að vinna með námi, takast á við tungumálaáskoranir eða jafnvel skort á einhverjum félagslegum tengslum. Ef við ætlum að taka mark á markmiðum laganna um jafnt aðgengi að námi, að þetta sé það jöfnunartæki sem við viljum virkilega að það sé, þá verðum við líka að tryggja að kerfið nái utan um einstaklinga í svona stöðu.

Síðan varðandi vaxtaálagið og það sem er verið að leggja til hér, þetta er vissulega skref fram á við, að nota þriggja ára meðaltal til að ákvarða vexti. En ef við horfum á heildarmyndina — nú hef ég ekki alveg skoðað það sjálf, ég var aðeins eitthvað að reyna að kíkja á gögn þegar ég var að undirbúa mig fyrir þessa umræðu og maður veltir því fyrir sér hvort hæstv. ráðherra hafi eitthvað skoðað undanfarin fimm ár eða undanfarin tíu ár, í hversu mörgum tilvikum þessi breyting hefði í rauninni leitt til jafnvel hærri vaxta, í hve mörgum prósentum tilvika það hefði verið. Það væri áhugavert að fá fram í umræðuna hvort það sé einhver greining á því, hvort við séum raunverulega að skapa stöðugleika með þessu. Það sem maður veltir líka fyrir sér varðandi vaxtaálag vegna væntra affalla — ég veit ekki hvort það er sanngjarnt að setja áhættumat ríkisins sem álag á ungt fólk sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Ég bara velti þessu upp hér því að þetta er oft fólk sem býr jafnvel við tímabundna ráðningu þegar það er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði og ekki endilega hæstu tekjurnar, ótrygg kjör. Námslánin eiga auðvitað að vera fjárfesting í lífinu og einstaklingunum en þá verðum við auðvitað að viðurkenna líka að við þurfum aðeins að skoða varðandi lánveitandann og hvar einstaklingurinn er staddur.

Um aldurstakmörkin og réttindin. Það kemur fram að aðeins þeir sem ljúka námi fyrir 35 ára aldur hafi rétt á tekjutengdum afborgunum samkvæmt lögum. Það vekur aðeins upp spurningar um hvort við séum með þessu móti eitthvað að draga úr áhuga hjá fólki til að fara í nám síðar á lífsleiðinni. Við höfum verið að hvetja til símenntunar. Við höfum verið að hvetja til endurmenntunar og við vitum að það eru einstaklingar sem eru eldri, jafnvel á mínum aldri, sem eru að fara að sækja sér aukin réttindi í einhverju eða sækja sér einhverjar námsgráður. Við höfum kallað eftir þátttöku á vinnumarkaði frá öllum kynslóðum og svo teiknum við upp kerfi sem hvetur til hraða og útilokar í rauninni þá sem bregða út af norminu og passa ekki inn í boxið. Það er líka mikilvægt að horfa til kvenna. Þær eru í meiri hluta meðal námsmanna og lánþega og maður veltir því fyrir sér hvaða ólíku áhrif þessi aldursmörk eða takmörk og skilyrði sem byggja á stífri námsframvindu hafa á kynin, hvort það sé eitthvað sem við þurfum að skoða frekar í framhaldinu.

Það er verið að rýmka þarna styrkjakerfið og gera ráð fyrir að nýtingin fari úr 70% í allt að 90% og eigi að rúmast innan þeirra fjárheimilda sem sjóðurinn hefur haft frá stofnun 2020, þannig að hér er verið að tryggja að fjármagnið nýtist betur og fari til þeirra sem á þurfa að halda, sem er mjög jákvætt.

Það eru nokkur atriði sem mig langar líka að nefna. Til dæmis kom hæstv. ráðherra inn á að það er aðallega tvennt sem þetta frumvarp er að taka á. Það er verið að taka á háum vöxtum í samfélaginu. Það eru vissulega sveiflur í vöxtunum. Við erum í háu vaxtaumhverfi núna, það fer lækkandi sem betur fer, en síðustu 2–3 ár hafa verið erfið. Þar á undan var vaxtaskeiðið bara mjög sanngjarnt og jákvætt, það var mikill stöðugleiki og góð staða. En það er kannski mikilvægt líka að við horfum á meðaltal lengri tíma því það koma hávaxtaskeið og svo lækka þeir aftur. Við vitum alveg að þetta kemur í sveiflum og ég tel afar mikilvægt að nemendur séu ekki að greiða af tveimur lánum í einu, og mjög jákvætt að það sé verið að bregðast við því.

Það sem mig langar kannski að vekja athygli á hér í tengslum við námslán og jöfn tækifæri er að nú er ég landsbyggðarþingmaður og þekki ansi margar fjölskyldur og foreldra barna sem hafa farið mismunandi leiðir í námskerfinu okkar. Horfum á ein hjón sem eiga tvö börn. Annað barnið sér tækifæri í því að mennta sig í heimabyggð. Það getur búið heima, það getur stundað námið sitt og jafnvel unnið með náminu, þarf ekki að borga neina leigu og engin námslán. Síðan er það hitt systkinið sem hefur ekki tækifæri til að mennta sig í því sem það vill í heimabyggð. Það fer jafnvel hingað til Reykjavíkur, tekur húsnæði á leigu, námslán til að greiða af húsnæðinu. Þótt það sé kannski á einhverjum stúdentagörðum eða öðru þá kostar það meira fyrir viðkomandi einstakling. Þegar þriggja ára námi er lokið þá eru þessir tveir einstaklingar á gjörólíkum stað. Einstaklingur sem getur búið heima og stundað námið sitt heima á jafnvel pening af því að hann hefur getað unnið með náminu á meðan hitt systkinið er jafnvel með töluverð námslán á bakinu, engan aukasjóð, þannig að tækifæri þeirra til að byrja eftir námið eru ekki þau sömu. Af því að hæstv. ráðherra situr hér og er að hlusta á umræðuna þá væri áhugavert að heyra hans viðhorf til þessa, hvað hægt sé að gera. Ég veit að það er ekkert hægt að gera allt fyrir alla en þetta er vissulega áskorun og staðan ekki jöfn milli þessara einstaklinga.

Það er mikilvægt að svona lög séu ekki meitluð í stein, að þau séu endurskoðuð, tillit sé tekið til þeirrar þróunar sem á sér stað í samfélaginu hverju sinni. Þannig að ég fagna því sem verið er að gera hér núna. En af því að hv. þm. Jón Pétur Zimsen kom inn á gagnrýna hugsun þá langar mig aðeins að þreifa á því. Það er einmitt svo rosalega mikilvægt að við kennum börnunum okkar gagnrýna hugsun. Við erum núna í heimi fjölmiðla þar sem eru sífellt færri ritrýndar greinar, ritrýndar fréttir og við þurfum að geta lesið í gegnum þessi skilaboð, þannig að það er afar mikilvægt að við förum aðeins að athuga hvernig við getum hjálpað börnunum okkar. Þá er ég ekki endilega að vísa til kennaranna og starfsins þar heldur að við sem foreldrar og sem fyrirmyndir þurfum líka að benda börnunum okkar á þetta, að taka ekki öllu sem gefnu, rannsaka hlutina og kynna sér þá.

Varðandi fjarnámið, af því að mér gafst ekki tækifæri til að fara aftur í andsvar við hv. þingmann þá ætla ég að nýta tækifærið núna. Ég nefndi Skóla í skýjunum sem mér finnst alveg frábært úrræði og ég er alveg sammála því að mannlegu samskiptin og mannlegi þátturinn skorar alltaf hærra en í þeim tilvikum þar sem ekkert annað er í boði þá er þetta gríðarlega öflugur og flottur vettvangur fyrir einmitt nemendur sem búa í hinum dreifðu byggðum og hafa ekki tækifæri til þess að hafa kennara til að sérhæfa sig í því sem þarf að kenna. Ég held að þetta sé eitthvað sem við eigum að skoða frekar, í framhaldinu a.m.k., vegna þess að þetta getur eflt okkar krakka og þau geta staðið enn styrkari fótum í framtíðinni.

Virðulegi forseti. Hér erum við að ræða um frumvarp sem er vissulega að taka skref fram á við. Við erum líka með gögn sem sýna að við hefðum alveg getað gengið lengra, vissulega. Við hefðum jafnvel getað tekið upp eitthvert sanngjarnara og opnara kerfi fyrir fleiri þannig að ég bind vonir við að hæstv. ráðherra hafi aðeins hripað niður einhverja punkta hérna og sé reiðubúinn til að skoða þetta í framhaldinu af vinnunni því að við þurfum að hanna kerfi sem stenst þær kröfur sem við gerum í rauntíma þar sem námsmenn fá ekki bara tækifæri heldur raunverulega tækifæri sem þeir geta þá nýtt því að til þess er leikurinn eflaust gerður.

Ég fagna umræðunni sem er í dag því við erum öll að leita leiða til að gera kerfið okkar og samfélagið okkar betra og ég hlakka til vinnunnar í hv. allsherjar- og menntamálanefnd, sem þessu máli verður eflaust vísað til.