156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[20:11]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir mjög málefnalega ræðu þar sem dregið var fram hvað væri gott og vissulega líka hvað væri hægt að gera betur og ég er sammála hv. þingmanni um að það er alveg hægt. Þetta frumvarp markast kannski fyrst og fremst af tvennu. Það var skammur tími sem við höfðum og ríkisstjórnin boðar aðhald í ríkisrekstri sem á að skila sér á endanum í lægri verðbólgu og lægri vöxtum sem hjálpar líka við endurgreiðslu námslána. En betur má ef duga skal og við ætlum að halda áfram og boðum heildarendurskoðun, hvort sem hún leiðir svo til gjörbyltingar á kerfinu eða bara umbóta á því, af því að það verður líka að vera valkostur. Það er rétt hjá hv. þingmanni að það er ekki endilega víst að þetta fyrirkomulag með þriggja ára tímabilið sé alltaf í öllu tilfelli hagstæðara námsmönnum en við töldum samt að það þyrfti að grípa til þess núna vegna þess hve vextir eru háir. En við segjum auðvitað líka að það mun verða skoðað.

Hv. þingmaður ræddi líka fyrirsjáanleikann sem mér fannst skipta máli. Það er alveg rétt að fjölbreyttara fólk stundar nám núna en var fyrir 150 árum. Þess vegna var þessi 20/10 regla innleidd í staðinn fyrir 30. Ég er ekki beinlínis með spurningu í þessu andsvari en vildi bara koma hingað upp af því að spurningu var beint til mín. Ég tek undir með hv. þingmanni að það þarf líka að skoða þetta út frá t.d. þáttum eins og byggðajöfnuði. Við sjáum alveg á okkar gögnum hverjir þurfa að taka námslán og hverjir taka ekki námslán.