156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[20:13]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Ég skil vel að skammur tími var til stefnu en ég fagna því samt að hæstv. ráðherra hafi tekið upp þessa vinnu og sé að fylgja henni eftir. Það er mjög mikilvægt og við í Framsókn styðjum málið heils hugar þó að við séum að benda á ýmsa þætti sem megi jafnvel gera betur og ég fagna því að hæstv. ráðherra sé tilbúinn til að skoða það í framhaldinu, hvort sem það verður heildarendurskoðun á einhverju eða einhverjar umbætur. Þó að við viljum ekki alltaf vera að taka upp lög á Alþingi og breyta og plástra er samt mikilvægt að geta gert það ef þörf er á. Hann nefndi líka þetta þriggja ára tímabil, að hann átti sig á því að það sé ekkert alltaf hagstætt. Ég tek undir það og var mjög ánægð að heyra að hann væri reiðubúinn til þess að skoða þetta, að verið sé að bregðast við núna í þessu hávaxtaskeiði, þó að vextir fari lækkandi, en að þetta verði endurskoðað.

Mig langar að nýta tækifærið og spyrja hæstv. ráðherra út í það, af því að það komst ekki að í andsvörum, sem ég nefndi áðan varðandi stuðning, hvort sem er í tengslum við niðurgreiðslu á námslánum eða einhverjar skattalegar ívilnanir til kennara. Nú erum við að tala um kennara. Ég veit að þetta varðar líka heilbrigðisstéttir og fleiri stéttir en varðandi sérfræðinga á menntasviðinu þá þekkir hæstv. ráðherra nú hvernig kjördæmið okkar er. Við erum að horfa á þessar dreifðu byggðir þar sem er erfitt að fá fólk til starfa. Sér hann fyrir sér og myndi hann styðja slíkt mál, væri það lagt fram á þinginu, að vera með einhverjar sérstakrar og enn frekari ívilnanir en eru í dag til þess að laða að fólk á landsbyggðina til að kenna börnunum okkar?