156. löggjafarþing — 24. fundur,  2. apr. 2025.

Menntasjóður námsmanna.

254. mál
[20:15]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Mér er ljúft og skylt að segja að við erum að skoða þetta. Ég hef rætt þetta töluvert við hæstv. heilbrigðisráðherra. Það er heimild, eins og við þekkjum, í lögunum núna til þess að veita þennan stuðning. Hann er bara of lítill og það þarf eiginlega að stíga stærri skref. Auðvitað þarf að vanda sig mikið við þetta vegna þess að það er hægt að sýna fram á að það sé mjög víða skortur í alls konar greinum þannig að við getum ekki bara kastað netinu mjög breitt út. Þetta er kostnaðarsamt og því þarf að hugsa þetta mjög vandlega. Ég þykist alveg vita að það á að geta náðst samkomulag um slíka hluti mjög þvert á stjórnmálaflokka. Það hefur maður heyrt.

Eitt er í rauninni að veita ívilnun til þess að flytjast út í hinar dreifðu byggðir til að vinna, hitt er að skoða hverjir eru líklegastir til að vilja gera það. Við höfum rannsóknir sem sýna að fólk sem elst upp úti á landi er líklegra til að geta hugsað sér að búa varanlega úti á landi. Þá þurfum við að horfa á fleiri hluti. Við þurfum t.d. líka að horfa á hluti eins og þann aðgang sem fólk á að námi hér fyrir sunnan. Við höfum tölur úr læknadeild HÍ sem sýna, að ég held, að 90–95% af öllum sem eru teknir inn síðustu árin koma úr þremur framhaldsskólum í Reykjavík, einn kannski frá Akureyri á ári eða eitthvað svoleiðis. Aðrir komast ekki að og þurfa þess vegna gjarnan, ef þeir vilja t.d. fara í læknisnám, að fara til Ungverjalands eða annarra ríkja sem bjóða upp á fyrirtaksnám. Það er þó mjög dýrt og fylgja því mjög há námslán. Þetta fólk hefur frekar viljað koma út á land. Við þurfum sem sagt að skoða hvort tveggja.