Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Þetta hefur eiginlega snúist við en ég þakka hæstv. ráðherra fyrir og er alveg sammála því að heimildin sem hægt er að virkja í lögunum er lítil og það er líka flókið ferli. Það þarf alls konar samþykki og hitt og þetta. Það er eitthvað sem væri jafnvel hægt að einfalda fyrir námsmenn og fyrir í raun alla hlutaðeigandi aðila. Ég fagna því að verið sé að skoða þetta með einhverjar ívilnanir, af því að það er mikilvægt, og er alveg sammála því að þetta eigi ekki endilega að gilda fyrir alla en það er alveg hægt að setja af stað greiningar. Hvar vantar? Hvar eru göt í kerfinu okkar? Hvar getum við stutt við? Þá í rauninni gengur sú ívilnun til viðkomandi svæðis á viðkomandi tíma, svo þegar búið er að fylla upp í það þá fellur sá réttur niður. Ég held að það væri líka leið sem við gætum skoðað í framhaldinu. Ég þakka kærlega fyrir umræðuna.