Menntasjóður námsmanna.
Frú forseti. Hér í síðari ræðu minni við 1. umræðu langar mig að ræða mál sem ég náði ekki að gera almennileg skil í fyrri ræðu en hafa reyndar komið talsvert við sögu í þessari umræðu. Við erum hér að ræða um hvata. Við erum að tala um hvata ríkisins til að beina fólki í þá átt sem við viljum að fólk fari, þ.e. til mennta. Annars vegar vildi ég nefna hvatann til að fá fólk til að vinna á þeim stöðum þar sem þörf er fyrir þá starfskrafta og þá menntun. Fleiri hafa nefnt þetta, hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson gerði mikið úr þessu hér áðan. Ég held að það sé rétt að í framhaldslögum, af því að þetta frumvarp er eiginlega kynnt sem fyrsta skref, arfleifð frá síðustu ríkisstjórn, verði hugað í auknum mæli að því að hvetja til þess að fólk sem hefur þá menntun sem skortur er á á ákveðnum svæðum landsins nýti þá menntun á þeim svæðum. Það er best gert, alla vega vel gert, í gegnum þetta kerfi.
Hitt er það sem oft er rætt og hefur oft verið rætt í gegnum tíðina á Íslandi, um fólk sem heldur út til náms. Auðvitað eru mikil verðmæti í því fólgin að fólk hafi tækifæri til að öðlast þekkingu í háskólum erlendis í öðru umhverfi en við viljum helst fá sem flest af þessu fólki til baka. Ég held að það ættu að vera til staðar hvatar til þess. Ef þetta fólk reiðir sig á námslán frá Íslandi, ég tala nú ekki um ef þau eru svo niðurgreidd, þá er búið að veita því fólki ákveðinn styrk. Það er hins vegar dálítil þversögn í því fólgin að maður heyrir oft talað um það að við Íslendingar þurfum að laða til okkar fólk, erlent fólk sem er menntað í útlöndum. Þá veltir maður fyrir sér: Er það alveg siðferðilega forsvaranlegt að við séum nánast að reyna að stela fólki frá öðrum löndum sem þau lönd, oftast miklu fátækari lönd, hafa fjárfest í að mennta? Þetta hefur því tvær hliðar. Ég vildi bara koma þessu að. Að þessu þarf að huga af því að þetta er þrátt fyrir allt kerfi sem er til þess ætlað að hvetja til ákveðinnar hegðunar, hvetja til þess að fólk leiti sér mennta. Þá er allt eins gott að það kerfi taki heildarmyndina með í reikninginn.
Svo vil ég víkja aðeins aftur að því sem var rætt hér framan af, og ég ræddi aðeins í fyrri ræðu minni, varðandi það sem hefur verið kallað skaðmenntun. Það var mjög áhugavert að hlusta á hv. þm. Jón Pétur Zimsen tala hér áðan um tengingarnar í heilanum, hvernig þær verða til og til hvers menntun er, í raun að þjálfa fólk í að hugsa. Ég held að við getum öll verið sammála um mikilvægi þess að menntun sé til þess fallin að kenna gagnrýna hugsun. Ég held að það sem átt sé við með hugtakinu skaðmenntun sé að hún leiði til hinnar niðurstöðunnar, að fólk temji sér síður gagnrýna hugsun, að það eigi sér stað innræting og menn útskrifist með lokaðri huga en þeir voru með þegar þeir hófu nám. Hv. þm. Jón Pétur Zimsen lýsti því að ef það tækist að mynda þessar tengingar í heilanum þá þyrftu menn ekki að reiða sig á Google, gervigreind eða annað. Nú vill svo heppilega til að ég þarf ekki í þessu tilviki að reiða mig á að gúgla eða leita í gervigreindina því að í salnum er hv. þm. Jón Pétur Zimsen. Því leyfi ég mér að varpa fram þeirri spurningu ef hv. þingmaður skyldi vera til í að bregðast við, án þess að það sé nein krafa frá mér: Hvaða tengingar verða til eða slitna í heilanum ef fólk fer í nám sem veldur því að við útskrift sé hugurinn lokaðri og menn sjái bara eina leið, bara eina skoðun, bara eina stefnu og berjist fyrir henni án þess að vera tilbúnir til þess að huga að öðrum hugsanlegum sjónarmiðum?