Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir seinni ræðu hans hér. Þær hafa verið mjög yfirgripsmiklar og að mörgu leyti ögrandi, getum við sagt, en hafa líka aðeins verið að varpa fram áleitnum spurningum og umræðunni sem hefur verið í kringum háskólasamfélagið undanfarin ár og við höfum séð, sérstaklega erlendis, raungerast í mörgum uppþotum og öðru sem hefur átt sér stað í háskólum í kringum alls konar pólitísk átök sem eiga sér stað í heiminum. Mig langar að spyrja hv. þm. Sigmund Davíð Gunnlaugsson: Telur þú að í raun hafi dregið úr gagnrýninni hugsun í háskólasamfélaginu, þar sem menn gátu skipst á skoðunum sem frjálsir menn og háskólinn var þetta samfélag frjálsra skoðana og frjálsrar hugsunar? Má skilja það á orðum þínum að orðið hafi bakslag innan háskólasamfélagsins í þeim efnum og að við séum komin út í meiri pólitískan rétttrúnað þar sem ekki er svigrúm fyrir breidd skoðana í akademíunni, háskólanum? Það er það sem mig langar að spyrja hv. þingmann um.
(Forseti (ÞSv): Nú þarf forseti að taka til við kennsluna. Hér notum við alltaf 3. persónu, ávörpum hæstv. forseta og tölum um hv. þingmenn í 3. persónu.)